Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 24

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 24
einnig tryggja vandaða málsmeðferð hjá barnaverndaryfirvöldum. Reglur nýju laganna um meðferð mála fyrir barnaverndaryfirvöldum eru að mörgu leyti líkar þeim málsmeðferðarreglum sem dómstólar vinna eftir. Vegna sérstöðu þessara mála og sérstöðu þeirra hagsmuna sem í húfi eru þyrfti alla vega að setja sérreglur fyrir dómstóla ef þeir færu með þessi mál, sbr. VIII. kafla barnalaga þar sem lögfestar eru ýmsar sérreglur fyrir dómstóla við úrlausn ágreinings um forsjá barna. Má þar t.d. nefna að dómari getur sjálfur aflað sönnunargagna, hann er ekki bundinn af kröfum og málsástæðum aðila og hann getur ákveðið að aðilum sé óheimilt að vera viðstaddir þegar barn fær að tjá sig um málið. 9. RÉTTARSTAÐA BARNA í lögunum er leitast við að styrkja réttarstöðu barna. Er það m.a. gert með því að börn eigi að jafnaði rétt á að tjá sig, og er það skylt ef barn er 12 ára eða eldra. Þá er heimilt þegar sérstaklega stendur á að skipa barni eða ungmenni talsmann. Þetta er í samræmi við 12. gr. samningsins um réttindi barna frá 1989 sem hér að framan var minnst á. Hlutverk talsmannsins er að gæta hagsmuna barnsins. Þetta veldur vissum vandræðum bæði fræðilega séð og í framkvæmd þar sem bæði foreldrar og barnaverndarnefnd fara líka með hagsmunagæslu fyrir barnið. Einnig er óljóst að hve miklu leyti barnið sjálft hefur réttarstöðu aðila, jafnvel þótt öll ákvarðanataka í málinu varði það fyrst og fremst. Verður væntanlega að meta út frá hagsmunum barnsins hvert hlutverk talsmanns skuli vera í hverju einstöku tilfelli. 10. HVERNIG ER REYNT AÐ TRYGGJA ÁRANGUR í BARNAVERND- ARSTARFI Þá er rétt að nefna nokkur atriði í hinum nýju lögum sem er sérstaklega ætlað að tryggja betri barnavernd. Mörg börn í sárri neyð fá aldrei neina hjálp vegna þess að upplýsingar um neyð þeirra komast aldrei til réttra aðila. Úr þessu er reynt að bæta með tilkynningarskyldu almennings og tiltekinna starfsstétta við barnaverndarnefnd. Um hana er fjallað í IV. kafla laganna svo og samstarf barnaverndarnefnda við ýmsar starfsstéttir og stofnanir sem hafa með börn að gera. Reglur þessar eru í sjálfu sér ekki nýmæli en eru mun skýrari og ítarlegri en eldri reglur. Þó eru í lögunum nýmæli varðandi nafnleynd þeirra sem tilkynna barnaverndarnefnd um atriði sem skylt er að tilkynna samkvæmt lögunum. Einnig eru skýr fyrirmæli um að tilkynningarskyldan gangi framar þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta. Byggir það á því að þegar litið er til þeirra hagsmuna sem í húfi eru hljóti hagsmunir barna í neyð að vega þyngra en aðrir hagsmunir. Þá er rétt að benda á, þegar metinn er árangur af barnaverndarstarfi, að aðgerðir barnaverndaryfirvalda verða að vera þannig að þær bæti hag viðkom- andi barna. Oft getur verið flókið að leysa úr vandamálum fjölskyldunnar svo og 254
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.