Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1995, Síða 14

Ægir - 01.03.1995, Síða 14
Ellingsen og Ingólfur Nýtt og betra flottroll „Sjósetning er mjög auðveld. Trollið fer mjög klárt í sjó- inn, flækist ekkert á tromlunni og tekur mjög vel „sjokkið" þegar búið er að láta hlerana fara. Það skverar sig mjög vel í sjónum eða um 7,6% af ummáli belgsins. Höfuðlínuhæð er 102 metrar og vídd milli hliðarbyrða 115 metrar. Trollopið í togi er því 11.730 fermetrar. Það er mun léttara í drætti, notar aðeins u.þ.b. 60% af olíu miðað við önnur flottroll, og er mjög meðfærilegt í sjó þar sem munnmöskvar eru klæddir í öllum byrðum og stærsti möskvi 38,4 metrar. Þess vegna er mjög lítið mál að snúa skipinu og það er alltaf fullskverað. Trollið er allt úr snúnu, ógegndræpu næloni og kemur því nánast þurrt inná tromluna aftur." Haukur Þorvaldsson, sölumaður hjá Ellingsen. Þannig lýsir Árni Þórðarson, skipstjóri á Margréti EA, nýja flottrollinu sem hann tók fyrstur íslenskra skipa um borð. Trollið, sem er kallað Hekla 1536, er framleitt hjá Swan Net Ltd. í Killybegs á írlandi, en það eru Ellingsen hf. í Reykjavík og Netagerðin Ingólfur í Vestmannaeyjum sem í sameiningu sjá um sölu og dreifingu fyrir Swan Nét hér- lendis. írarnir framleiða 3 troll í viku írarnir eru engir nýgræðingar í netagerð því Albert Swan og félagar hans hafa um árabil framleitt flottroll fyrir mak- rílflota íra og fleiri þjóða og meðal viðskiptavina þeirra eru ný og glæsileg fjölveiðiskip eins og Veronica, Paula og Arteria, sem óumdeilanlega eru í fremstu röð. Swan Net eru stærstu framleiðendur flottrolla í Evrópu og hafa framleitt um 1500 troll frá 1974 eða að jafnaði 3 troll í viku hin seinni ár. „Ellingsen hefur þjónustað sjómenn og útgerðarmenn í meira en 90 ár en á síðasta ári tókum við upp samstarf við Netagerðina Ingólf í Vestmannaeyjum," sagði Haukur Þor- valdsson sölumaður hjá Ellingsen í samtali við Ægi. „Ástæðan var fyrst og fremst sú að við vildum fá veiðar- færi í sölu og auka hagkvæmni í erlendum innkaupum. Það hefur okkur tekist í vírum, keðjum og lásum báðum til hagsbóta. Netagerðin Ingólfur er með umboð fyrir Swan Net og hafði þegar selt þrjú troll til síldveiða þegar við gengum til samstarfs við þá. Swan Net setti upp Heklutrollið sérstak- lega fyrir íslenskan markað, ætlað til veiða á úthafskarfa að ósk okkar til þess að veita Hampiðjunni samkeppni til hags- bóta fyrir íslenska útgerðarmenn. Það eru sextíu skip sem ætla að sækja í úthafskarfann að meira eða minna leyti og hvert þeirra þarf tvö troll. Svo má benda á að til þess að breyta þessu trolli í síldar- troll þarf aðeins að skipta um poka og nokkrar spólur í belgnum. Þetta er aihliða flottroll og það fyrsta var afhent um borö í Margréti EA í október sl. og hefur líkað sérlega vel eins og fram kemur í yfirlýsingu skipstjórans." Full þjónusta í samvinnu við heimamenn út um land Haukur bendir á nokkur atriði sem gera Heklutrollið frá- brugðið öðrum. Það er úr snúnu næloni sem þýðir aukið slitþol. Trollin endast í 6-7 ár sem er fáheyrt á fiskveiðum við ísland. Þeir sem kaupa Swan Net troll eiga kost á að fá írskan skipstjórnarmann með í fyrsta túr sem leiðbeinir mönnum. Þetta notfærði útgerð Margrétar sér með góðum árangri. „Við munum bjóða fulla þjónustu fyrir okkar troll bæði hér í Reykjavík, í Vestmannaeyjum og víðar á landsbyggð- inni í samvinnu við heimamenn á hverjum stað," sagði Haukur. Alls hafa verið seld fimm troll af þessari gerð til íslenskra skipa. Gnúpur GK tekur stærstu gerð af Heklu um borð í Vestmannaeyjum, Breki VE hefur gengið frá samningum og Klakkur SH og Runólfur SH einnig. Samherjamenn hafa þegar keypt troll fyrir Akureyrina og íhuga kaup á stærra trolli fyrir Margréti. Stærsta trollið sem Gnúpur GK fær er með ríflega 20 þúsund fermetra opnun. Það er röskir tveir hektarar sé tekin alþekkt landbúnaðarviðmiðun. 90% hlutdeild í veiðum Kanadamanna á Alaskaufsa „Troll mjög svipuð þessu eru notuð í Kanada þar sem Swan Net er með 90% markaðshlutdeild í veiðum á Alaska- ufsa. Þar hafa menn verið að taka 100 tonn eða meira af ufsa í þessi troll í einu togi. Af makríl eru tekin allt að 1200 tonn í einu togi." Haukur bendir einnig á að það komi fyrir lítið að vera með vandað troll. Annar búnaður þarf að vera sá besti sem völ er á. Lásar, vírar, hlerar - allt skal vera í hæsta klassa og þá mun árangurinn ekki láta á sér standa. „Við erum bjartsýnir á að það verði nóg að gera hjá okk- ur," sagði Haukur að lokum. □ 14 ÆGIR MARS 1995

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.