Ægir - 01.03.1995, Blaðsíða 40
Skipasmíðastöðin hf. Suðurtanga
Menn verða að fá að
endurnýja bátana
„I>a& er lífsspursmál fyrir okkur að
fá að smíða skip. Það er löngu
tímabært að endurnýja minni bát-
ana í flotanum. Það finnst öllum
sjálfsagt að endurnýja atvinnu-
tæki eins og vörubíla, dráttarvélar
og hvað sem er, en bátaflotinn er
bundinn í viðja fiskveiðistjórnun-
ar og stendur í stað," sagði Sigurð-
ur Jónsson, skipatækni- og kerfis-
fræðingur hjá Skipasmíðastöðinni
hf. í Suðurtanga á ísafirði, í sam-
tali viö Ægi.
Menn hafa fengist við viðgerðar
og skipasmíðar í Suðurtanganum frá
því á þriðja áratugnum en á miðju
árinu 1994 varð Skipasmíðastöð
Marsellíusar hf. gjaldþrota og nokkr-
ir einstaklingar tóku við rekstrinum.
Þar vinna nú 15-20 manns við við-
gerðir og breytingar á skipum en
undanfarin ár voru starfsmenn
30-40 og um 60 þegar mest var.
Stöðin byggir því á fagþekkingu og
reynslu margra áratuga.
Skipasmíðastöðin hefur breytt
I Skipasmíöastööinni hf. á Isafirði
vinna nú 15-20 manns við viðgerðir
og breytingar á skipum. í næstu
framtíð vonast menn þar til að geta
hafið nýsmíði að nýju, en endur-
nýjun bátaflotans er orðin mjög
aðkallandi.
fjórum skipum á listanum um breyt-
ingar á skipum sem birtist með þess-
ari grein. Tveir bátanna eru að vest-
an, sem er nokkurs konar heima-
völlur skipasmíðastöðvarinnar, en
einn kom sunnan úr Njarðvík.
Eigendurnir vinna með
stöðinni að breytingum
„Við höfum ákvebna sérstöðu í
breytingum á smábátum. Viö reyn-
um ab koma til móts við eigendur
smærri báta með því að bjóða þeim
að vinna við breytingarnar með
okkur eins og þeir vilja, t.d. við ab
mála og þess háttar. Við höfum
mjög góða aöstööu inni í húsi til
þess ab breyta smærri skipum og út-
vegum eigendum, sem koma að,
Lengdir opnir bátar
Lengd eftirtalinna opinna báta breyttist
á árinu 1994 en ekki er vitað hvort um
var að rœða miðjulengingu eða breytingu
á endum. Heimild: Fiskifélag íslands.
6038 Vala GK 425
Lenging 1,62 m
Brúttórúmlestir úr 2,49 í 4,45
Brúttótonn úr 2,68 í 4,37
6218 Tara HF 222
Lenging 1,53 m
Brúttórúmlestir úr 4,24 í 6,34
Brúttótonn úr 3,58 í 5,46
6220 Hallbjörn ÍS 96
Lenging 1,32 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 4,65
Brúttótonn úr 2,83 í 4,36
6377 Rúna GK 82
Lenging 0,64 m
Brúttórúmlestir úr 5,34 í 5,69
Brúttótonn úr 4,33 í 5,19
6395 Smári HF 122
Lenging 1,04 m
Brúttórúmlestir úr 4,24 í 4,94
Brúttótonn úr 3,58 í 4,85
6396 Vöggur RE 129
Lenging 1,53 m
Brúttórúmlestir úr 3,17 í 4,03
Brúttótonn úr 2,55 í 4,13
6455 Kvikk BA 132
Lenging 1,43 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 6,06
Brúttótonn úr 2,83 í 5,56
6511 Gísli Jónsson BA 400
Lenging 1,56 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 4,71
Brúttótonn úr 2,83 í 4,35
6512 Kári ÞH 145
Lenging 1,25 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 3,21
Brúttótonn úr 2,83 í 4,09
6549 Beta VE 36
Lenging 1,09 m
Brúttórúmlestir úr 5,34 í 6,08
Brúttótonn úr 4,33 í 5,77
6606 Sibba BA 48
Lenging 1,83 m
Breikkun 0,52 m
Brúttórúmlestir úr 3,14 í 7,30
Brúttótonn úr 2,58 í 5,73
- Bls. 42.
40 ÆGIR MARS 1995