Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Qupperneq 9

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Qupperneq 9
Magnús P. Torfason MAGNÚS Þ. TORFASON f. 5. maí 1922, d. 1. júní 1993 Magnús Þ. Torfason, fyrrverandi hæstaréttardómari og prófessor, andaðist í Reykjavík hinn 1. júní 1993 eftir stutta sjúkdómslegu. Með honum hvarf af sjónarsviði einn af merkustu lögfræðingum þjóðarinnar. Magnús fæddist 5. maí 1922 á Halldórsstöðum í Laxárdal í Suður-Þingeyjar- sýslu. Foreldrar hans voru hjónin Kolfinna Magnúsdóttir og Torfi Hjálmarsson bóndi á Halldórsstöðum. Magnús var óvenju vel af Guði gerður, fágaður og búinn miklum andlegum og líkamlegum hæfileikum. Orkaði ekki tvímælis, að hér var maður af sterkum stofni og vaxinn upp á menningarheimili. Námsferill Magnúsar var glæsilegur, enda var hann gæddur ágætum námsgáfum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1942 og kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla íslands í maí 1949. Hlaut hann afburðaháar einkunnir á báðum prófum. Hann var við framhaldsnám í lögfræði í Kaupmannahöfn 1954-1955. Alla ævi var hann að bæta við þekkingu sína. Hin síðari ár hafði hann þó stundum orð á því, að hann hefði lítinn tíma til að lesa lögfræði utan það, sem nauðsynlegt var vegna daglegra starfa. Magnús varð prófessor 33 ára gamall og hóf kennslu við lagadeild Háskóla Islands haustið 1955. Tók hann við embætti, sem prófessor Ólafur Lárusson hafði gegnt, en þá voru fyrir í deildinni prófessorarnir Ármann Snævarr, Ólafur Jóhannesson og Theodór B. Líndal. Hvíldi þá að heita má öll kennsla í lögfræðigreinum á þessum fjórum mönnum. Voru starfsskilyrði þeirra varðandi rannsóknir, kennslu og stjórnun að flestu leyti lakari en nú gerist. Meginviðfangsefni Magnúsar í prófessorsstarfi var fjármunaréttur. Hann kenndi þessar fjármunaréttargreinar: Almennan hluta kröfuréttar, samninga- rétt, skaðabótarétt, vátryggingarétt og víxla- og tékkarétt. Auk þess kenndi hann sjórétt, en kjarni hans er reyndar af sömu grein og fjármunaréttur. Á meðan Magnús var á lífi mun enginn maður á Islandi hafa verið honum fremri í 145

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.