Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Blaðsíða 25
vera bundnir við dómstóla, heldur skuli settar upp sáttastöðvar sveitarfélaga, einkaaðila og ríkisins. Þá er lögð áhersla á að dómstólakerfið verði þannig skipulagt að auðvelt sé að aðlaga það breyttum aðstæðum svo að það þjóni sem best þeim þörfum sem fyrir hendi eru á hverjum tíma. Ennfremur er lögð áhersla á fjárhagslegt sjálfstæði dómstólanna og lagt til að fjárlagatillögur séu lagðar beint fyrir þingið, en ekki ríkisstjóra, eins og nú er. Dómstólarnir fái heildarfjárveitingu, sem þeir ákveði sjálfir hvernig ráðstafað verði. Tvennt finnst mér athyglisvert í tillögunum öðru fremur; það er sú áhersla sem lögð er á fjárhagslegan stuðning við efnalitla, sem þurfa að leita réttar síns og eins tillögur um fleiri valkosti við úrlausn á deilumálum. Hvorutveggja þyrfti að taka til rækilegrar skoðunar hér á landi. Greinarhöfundur í heimsókn hjá indjánum í Warm Springs, Oregon VII. LOKAORÐ Víst er að það var dýrmæt og skemmtileg reynsla að kynnast bandarískum dómstólum. Sú reynsla er að vísu ekki mjög hagnýt þar sem réttarkerfi okkar og hið bandaríska eru gagnólík, sem og stærð og gerð þjóðfélaganna tveggja. Hér ræður mestu að mínum dómi kviðdómendakerfið, sem er í raun uppi- staðan í aðalmeðferð allra veigameiri mála, hvort heldur einka- eða sakamála. Jafn óvarlegt og okkur kann að finnast að leggja mat á sök í hendur hópi ólöglærða manna, sem valdir eru af tiltölulega miklu handahófi, þá finnst Bandaríkjamönnum fráleitt að leggja sama mat í hendur eins eða þriggja dómara. 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.