Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 36
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Kristján Hermannsson sölumaður, Guðmundur Jónsson sölu- og markaðsstjóri, Þór
Þórsson, Óskar Björnsson og Magnús Aadnegard, eigendur Framtaks.
/Uhliöa skipaþjónusta
Framtak er eitt af stærri fyrirtækjum hérlendis á sínu starfssviði,
með sérhæfingu í vélaviðgerðum, dísilstillingum og nýsmíði, auk
reksturs sölu- og markaðsdeildar.
Fyrirtækið er stofnað árið 1988
og nú starfa þar u.þ.b. 60
manns. Verkstæði Framtaks
skiptist í vélaverkstæði, dísil-
verkstæði, renniverkstæði og
plötuverkstæði. Einnig á Fram-
tak meirihluta í Vélaverkstæði
Dalvíkur, en þar starfa u.þ.b. 15
manns.
Eins og fyrirsögnin ber með
sér, er markmið fyrirtækisins að
veita alhliða og góða þjónustu og
hefur ekkert verið til sparað í
verkfærum, tækjakosti og við
þjálfun starfsmanna, til að svo
megi verða. Starfsmenn Fram-
taks hafa fyrir löngu sannað
hæfni sína við ýmis erfið verkefni,
enda er starfsliðið byggt upp af
mönnum með langa reynslu af
vélstjórn og viðgerðum.
Nýlega var tekið í notkun hús-
næði sem keypt var að Dranga-
hrauni 1 og bætist við það hús-
næði sem fyrir var að Dranga-
hrauni 1b. Nýja húsnæðið var
keypt undir plötusmiðju og til
viðgerða á stærri hlutum. Til-
koma þessa nýja húss opnar fyr-
irtækinu mikla möguleika og
sem dæmi um það, var nýlega
Frctmtak
véla- & skipa-
þjónusta ehf.
tekin þar inn til viðgerðar skipa-
vél í heilu lagi, en vélin vegur
u.þ.b. 24 tonn. Sölu- og mark-
aðsdeild Framtaks er einnig til
húsa í þessari sömu byggingu.
Á Sjávarútvegssýningunni eru
allar deildir fyrirtækisins kynntar
ásamt þeim tækjabúnaði sem
þær hafa yfir að ráða. Ýmis sér-
hæfð verkfæri eru kynnt, svo sem
laser mælitæki til afréttinga milli
einstakra vélahluta, tölva til bil-
anagreininga og stillinga á stærri
dísilvélum, ásamt ýmsum öðrum
Framtak Véla- &
skipaþjónusta ehf.
Drangahrauni 1-1b
220 Hafnarfjörður
Sími: 565 2556
Fax: 565 2956
Netfang: framtak@isholf.is
verkfærum sem annað hvort eru
til sýnis á staðnum eða eru sýnd
á tölvumyndum. Einnig verður
sýnt kynningarmyndband um fyr-
irtækið þar sem m.a. má sjá upp-
tekt á stórri vél í skuttogara.
Á sýningarbásnum eru kynnt-
ar þær vörur sem sölu- og mark-
aðsdeild hefur upp á að bjóða og
á útisvæði er sýndur staðlaður
Framtak/MKG bryggjukrani, en 5
slíkir kranar hafa nú þegar verið
afgreiddir. Auk þess að útvega
varahluti og tæki, leggur sölu- og
markaðsdeild sérstaka áherslu á
rekstrar- og efnavöru frá fyrir-
tækinu UNIservice og á sölu þil-
fars-, bryggju- og bílkrana frá
kranaframleiðandanum MKG í
Þýskalandi, sem er nú þegar
þekkt merki á íslenska markað-
inum. Fulltrúar beggja þessara
fyrirtækja heimsækja sýninguna.
Auk þeirra koma fulltrúar frá Tur-
bo UK i Englandi sem er sérhæft
fyrirtæki í viðgerðum og vara-
hlutum fyrir afgastúrbínur og
einnig frá Tempress í Danmörku
sem framleiðir mæla af öllum
gerðum fyrir skip og til iðnaðar.
Eigendur og starfsfólk Fram-
taks bjóða gesti velkomna í bás
A 66 í Smáranum, aðalsal.
34 ÆGIR