Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Page 17

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Page 17
17 Heilög sannleiks sól! Heilög sannleiks sól! Breið þú, sannleikans heilaga, himneska sól, yfir liáskólann yl þinn og Ijós! Auk samfagnaðarskeytanna frá konungi vorum og há- skólanum í Kristíaníu, sem getið er hjer að framan, bárust Háskóla íslands á stofnunardeginum samúðarskeyti frá gagn- fræðaskólanum á Akureyri, bæjarstjórn Akureyrar, fjelagi Færeyinga í Kaupmannahöfn, Ungmennafjelagi á Sunnmæri í Noregi og frá alþjóðaíundi kyennfrelsiskvenna i Stokkhólmi. 4. Ráðstafanir til bráðabirgða. Sumarið 1911 samdi og samþykti háskólaráðið: 1. Bráðabirgðareglur um starfsvið háskólaráðs og rekt- ors, sem vóru staðfestar af Stjórnarráði íslands 22. sept. 1911 (fylgiskjal IV). 2. Frumvarp til Bráðabirgðareglugjörðar fyrir háskóla íslands, sem var staðfest af konungi 4. okt. 1911 (fylgiskjal V). Síðar var samþyktur Viðauki við þessa Bráðabirgða- reglugjörð, sem náði staðfestingu konungs 27. des. 1911 (fylgi- skjal VI). II. Stjórn háskólans. Rektor háskólans var þelta háskólaár prófessor dr. Björn M. Ólsen, kosinn til þess starfs á almennum kennarafundi 10. júní 1911, sem áður er sagt. Deildar/orselar vóru þessir: I guðfræðisdeild: prófessor Jón Helgason, - lagadeild: prófessor Lárus H. Bjarnason, - læknadeild: prófessor Guðmundur Magnússon, - heimspekisdeild: prófessor dr. Ágúst H. Bjarnason, 2

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.