Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 125
BÚNAÐARRIT
115
ekki getað átt sér stað nema með nánu samstarfi milli
þeirra, sem vinna með vélunum, og hinna, sem annast
innkaup þeirra og sölu. Það virðist hafa tekizt vonum
betur. Hefir altaf verið haldið vakandi Ieit að nýjungum
á þessu sviði, og yfirleitt hefir sú leit borið töluverðan
árangur. Það er ólíkt hvað við vitum nú betur en fyrir
3—4 árum síðan, hver verkfæri þurfa að fylgja góðri
dráttarvél, til þess að hún komi að notum og hver teg-
und þeirra er traustust og stórvirkust. Hér má þó ekki
nema staðar. Verkfærin, sem notuð eru með dráttarvél-
um, ganga filtölulega fljótt úr sér og nýjar gerðir koma
til sögunnar, sem taka hinum eldri fram. Um allt slíkt
verðum við að vita. Þótt dráttarvélakaup síðustu ára hafi
ekki verið öfgalaus, og mörgum, sem keypt hafa, séu
þær nú meiri byrði en bjargráð, mun notkun þeirra,
senn hvað líður, komast í heilbrigðara horf. Að því skal
vinna, en ekki gefast upp. Það verður bezt gert með því,
að útvega altaf betri og hentugri dráttarvélaverkfæri til
að vinna með, og að fullkomna vinnubrögðin. Val og
kaup dráttarvélanna og dráttarvélaverkfæranna hefir mér
altaf virst vandamál, og í engu hefi ég fundið betur
hvers virði það er, að þekkja hlutina og verkefnin af
starfi og raun, fram yfir að þekkja það aðeins fræðilega
og á pappírnum.
Heyvinnuvélanotkunin hefir aukizt mikið á síðustu ár-
um. Sala S. í. S. sýnir það nokkuð; eru þó ýmsir fleiri,
sem selja heyvinnuvélar. Samfara því, sem notkunin hefir
aukizt, hefir hún breyzt og um leið kröfurnar, sem gerð-
ar eru til þeirra. Nú eru vélarnar notaðar mikið meira
á tún en áður var. Kröfurnar um, að sláttuvélarnar séu
vel nærslægar, eru því strangari. Um leið er viðhald vél-
anna orðið mjög alvarlegt atriði. Það er nú almennt við-
urkennt, að hyggilega valdar og útbúnar sláttuvélar vinni
fullt og gott verk á öllum sæmilega ræktuðum og sprottn-
um túnum. Um nothæfi rakstrarvélanna hafa menn verið
meira í vafa; nú er það að breytast; nýjustu rakstrar-