Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 180
170
BÚNAÐARRIT
cm bili milli strengja, hverjum streng er einbrugðið um
hvern staur, og er það betra en að nota lykkju eða
króka. Þegar búið er að setja þannig lagaða girðingu
upp, með 5 — 6 strengjum hvern upp af öðrum er »hesj-
an« fullgerð til að hengja á hana kornstöng, fræstöng
eða hey. Korn er t. d. sett á þann hátt, að bindunum
er raðað á strengina þannig, að kornaxið á neðsta streng
verði undir kornstangarótinni á næsta streng og svo koll
af kolli. Þegar búið er að láta bindin á alla strengi er
kornið bert á efsta streng, en til þess að verja það
fyrir regni, er kornstangadreifin lögð ofan á og strengt
þar yfir með vír svo ekki fjúki. Þegar búið er að ganga
þannig frá »hesjunni« eru skástífur settar við 5.-6.
hvern staur, beggja vegna. A þá »hesjan« með korninu
að vera trygg fyrir roki og regni. Kornið eða fræið
smáþornar þarna, hverju sem viðrar, og þarf venjulega
ekkert um það að hugsa fyr en það er þurt á »hesjunni«
og það er hirt þegar kemur þur dagur. Þó að rigni er
alltaf vindsúgur inn í »hesjuna« eða á milli strengjanna.
Mér reyndist í sumar, að bæði byggi og höfrum væri
alveg borgið þegar búið var að setja það á »hesju«,
það smá þornaði í rigningunum og bjargaðist prýðis vel
þurt, eftir 10 — 15 daga. Sömuleiðis þurkaði ég grasfræ
með þessum hætti og tókst vel.
Til þess að þurka hafra af 1 dagsl., þarf 50—100,
staura og hver staur kostaði s. 1. vor kr. 1,15 í inn-
kaupi. Eg hefi ekki reiknað hvað mikill vinnusparnaður
það er, að nota þessa aðferð á móts við að þurka í
strókum, en ég býst við, að í góðri tíð sé munurinn
lítill, en töluverður í misjafnri tíð. Þó er tvennt sem
vinnst, fyrst trygging fyrir því að uppskerar þornar og
skemmist ekki, og svo vinnusparnaður á að hirða um
kornið, því mikið verk liggur í því að hirða um korn
í strókum á ökrum úti í 4—6 vikur eða Iengur, þegar
tíð er misjöfn og hrakviðrasöm.
Þá er enn einn kostur við það að þurka á »hesju«