Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 309
B U N A Ð A R R I T
299
ekki fært að leggja til að lækka liðinn í þetta sinn, þó
hún hinsvegar leggi til að hinar árlegu skýrslur verði
vélritaðar.
c) . Náms- og ferðastyrkir leggur nefndin til að haldist
óbreyttir, kr. 4000,00. Nefndina brestur kunnugleika til
að gera sér grein fyrir hverjir af þeim, sem sótt hafa
um styrk í þessu skyni, séu líklegastir til að skila mál-
um landbúnaðarins beztum arði af þessum styrkveitingum.
Og hinsvegar hefir reglan af eðlilegum orsökum verið sú,
að þó að Búnaðarþingið hafi lagt til ýmsra styrkja fyrir það
ár, sem það er haldið, hefir stjórn félagsins ráðstafað því
að mestu leyti annað árið. Vill því nefndin hallast að
því, að stjórnin ákveði hverjir njóti þessara styrkja
bæði árin.
d) . Til ýmiskonar námsskeiða áætlar nefndin kr.
2000,00. Af þessu fé verði kostað námsskeið fyrir eftir-
litsmenn nautgriparæktarfélaganna, sem ætlast er til að
haldið verði á þessu ári. Ennfremur útvarpsfræðsla o. fl.
Búreikningafærsla: >Af liðum þessum greiðist:
1. Til Guðmundar ]ónssonar, kennara á Hvanneyri,
fyrir handrit í búreikninga, kr. 600,00.
2. Þóknun til bænda, er Búnaðarfélag Islands hefir
samið við um færslu búreikninga, allt að kr. 40,00
til hvers == kr. 1000,00.
3. Til búreikningafélags, undir stjórn Guðmundar ]óns-
sonar á Hvanneyri, allt að kr. 400,00 — þó ekki yfir
sem svarar kr. 40,00 til hvers félagsmanns.
, Styrkir þessir séu bundir því skilyrði, að Búnaðarfél.
Islands fái afrit af búreikningunum*.
Gjaldliður 13. Aukasíprkur til sambandanna:
1. Aukastyrknum til sambandanna skal skipta að J/3
eftir tölu gjaldskyldra búnaðarfélagsmanna á félags-
svæðinu, að J/3 eftir samanlögðu fjárframlagi til sam-
bandsins af sambandssvæðinu, hvorttveggja miðað við
síðasta reikningsár. Ennfremur að V3 miðað við mis-