Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 318
308
B U N A Ð A R R I T
búr og geymsla — og allstórt vinnuherbergi, til notk-
unar í sambandi við tilraunastarfsemi félagsins.
í áætluninni er gert ráð fyrir, að kjallari undir fjósi,
gólf í því og gólf í íbúð, séu gerð úr steinsteypu, en
veggir að öðru leyti úr tvöföldum r-steini og stoppaðir
lír mómold. Sennilega mundi mega draga eitthvað úr
bYSSÍngarkostnaðinum með því að gera viðbót við hlöðu
úr timbri og járni, en veggi í fjósi og íbúð ofan kjallara
úr timbri járnvörðu, en innanþilja úr »masonit« eða
öðrum þiljuplötum, sem dálítið er byrjað að nota hér á
landi. í þessu sambandi má geta þess, að síðastl. sumar
fluttist til Akureyrar sérstök tegund af járni, sem er
þannig gerð, að hægt er að »spekka« á það og má
þannig gera samfelda þunna steinhúð utan á timbur-
grind. Efni þetta hefir lítið verið reynt hér, en væri þess
vert, að því væri nokkur gaumur gefinn, og mun Rækt-
unarfélagið fúst til að gera tilraun með þetta og fleira,
er miðað gæti að því að gera byggingar til sveita ódýr-
ari en orðið hefir, eftir undanfarinni reynslu.
Nefndin vill mæla með því, að félaginu sé veittur hinn
umbeðni styrkur til þessara bygginga og styður þau
meðmæli sín við eftirfarandi atriði:
1. Ræktunarfélag Norðurlands hefir nú um 30 ára skeið
unnið óslitið að margþættri tilraunastarfsemi í fóður-
rækt, garðrækt, trjá- og blómarækt, og jafnan lagt mikið
kapp á að efla tilraunastöð sína við Akureyri sem mest.
2. Nefndir þær, sem höfðu til meðferðar fyrirkomulag
tilraunastarfsemi í landinu, fyrir og á Búnaðarþingi
1929, voru sammála um að leggja til, að tilrauna-
stöð Rf. Nl. yrði efld sem aðal-tilraunastöð fyrir
Norðurland, og var enginn ágreiningur á því Bún-
aðarþingi um það atriði, og er það því í fullu sam-
ræmi við undanfarna rannsókn og áður fram kom-
inn vilja Búnaðarþings, að efla tilraunastarfsemi á
þessum stað.