Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 353
B Ú N A Ð A R R I T
343
Jónsson gerði grein fyrir tillögum hennar og greinar-
gerð, á þskj. 280, sem hér fer á eftir:
T i 11 a g a :
»Búnaðarþingið samþykkir að fela stjórn Búnað-
félags Islands og starfsmönnum þess í ræktunar-
málum, að vinna að og undirbúa handhæga bók í
jarðræktarfræði, er sé eigi meira en 500—600 síður
að stærð í sama broti og önnur búfræðirit félagsins,
og hafa handritið fullgert fyrir Búnaðarþingið 1937.
Um samning á einstökum köflum bókarinnar, getur
stjórnin samið við einstaka fagmenn utan Búnaðar-
félagsins, en skipulag starfsins, niðurröðun efnisins
og endanlegur frágangur bókarinnar sé í höndum,
ritnefndar, er skipi 3 af starfsmönnum félagsins í
þessari grein búfræðinnar«.
Greinargerð:
Nefndinni er ljóst, að oss vanhagar mjög um hand-
hæga og sæmilega ítarlega bók í jarðræktarfræði, en
getur hinsvegar ekki lagt til að ráðist sé í útgáfu slíkr-
ar bókar eins og sakir standa, af eftirfylgjandi ástæðum:
1. Tímarnir eru óhentugir til að ráðast í bókaútgáfu,
sem hlýtur að kosta allmikið fé.
2. Þó samningu bókarinnar yrði skipt milli nokkurra
manna, verður að ganga út frá því, að starfið verði
mestmegnis leyst af hendi sem ígripavinna, og þarf
því að ætla höfundunum góðan tíma til þess. Það
getur líka verið hagkvæmt að skipta störfum milli
þeirra, er að bókinni eiga að standa, sem fyrst, en
ætla þeim nokkur ár tíl að ganga frá handritum
sínum, svo þeir geti safnað þeim gögnum, er með
þarf, og gert ýmsar rannsóknir og athuganir, er
efnið snerta.
3. Þótt bókin sé fullsamin á þennan hátt, má gera ráð
fyrir, að það taki nokkurn tíma að rannsaka efni