Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 13

Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 13
N Ý T T L A N D 11 — ef ... ef ekki væru .. . værn þessi . .. þessi börn, sem hún átti. Hún vissi ekki, hvað þeir hugsuðu, menn- irnir, að láta svona. III. Einu sinni sem oftar var hún svo i hreingerningu hjá Ólafi Jónssyni út- gerðarmanni. Hún var að þvo gang- inn niðri — og með henni var mið- aldra, ógiftur kvenmaður, sem var fimm harna móðir. Hún hét Hinrikka og var vanalega kölluð Rikka rauða, af því að liún var ákaflega rauð i framan. Menn fengu nú viðurnefni i þessum bæ fyrir minna. Þær hömuð- ust við þvottinn, eins og þeirra var vani, stóðu uppi á borðum, sem lögð höfðu verið ofan á tómar tunnur, teygðu sig og sveigðu, handleggja- rauðar og meira og minna votar, stóðu fast i þreklega fæturna og rilluðu i holdugum mjöðmunum — og öðru hvoru tylltu þær sér á tá, svo það mótaði fyrir vöðvahnyklum á þrýstn- um kálfunum, og þunnar og hlettótt- ar kjóltuskurnar skröltu um hnjákoll- ana. Alt í einu heyrðist hávaði utan af götunni. Jóna hélt áfram þvottinum, en Rikka stansaði og hlustaði. Svo sagði Rikka: — Mér heyrðist það vera strákur- inn þinn! Það er víst að fara í hart milli hans og strákanna hans Ólafs hérnd. Hóla-.Tóna leit ekki einu sinni við: — Ekki held ég að ég sé að hlnsta eftir því. En nú urðu strákarnir enn þá liá- værari — og Rikka beygði sig og opn- aði gluggann, sem var þarna á gaflin- um .... Og nú heyrðist greinilega inn: — ef ... ef ekki væru . . . væru þessi en ég! — Teldu sjálfur, bölvaður asninn þinn! Þögn. Þriðja röddin: — Hann hefir stolið frá þér! — Það er djöfuls lygi! Hann dró ekki fleiri — og þó beitti ég þrisvar fyrir hann! — Éttu skít! Þú ert þjófnr! Lægra og ógnandi: — Er ég þjófur? — Ja-á. Þú ert þjófur — og hún mamma þín er hóra! Hún er hó-ó-ra! Hóla-.Tóna herti á tuskunni sinni. — Þú ert hóru-ungi og þjó-ófur! — Hórungi og þjófur, hórungi og þjófur! Hæ, greyið, hæ, grevið, hahæ! Rikka var nú komin hálf út í glugg- ann: — Svona, svona! Þar slær hann Mugg! .... Heyrirðu öskrið, mann- eskja! .... Og þar gefur hann Steina á hann! Hann rýkur hara! Rölvaður fantur er strákurinn að slá! Rikka tví- sté á horðunum. Augnahliks þögn. Svo byrjaði Rikka aftur: — Nei, nei, sérðu nú barasta! Þar rjúká þeir báðir á hann. Helvíti stend- ur hann sig vel á móti svona stórum strákum! .... En hana! Þar koma þeir honum undir. Nú taka þeir báðir í hárið á honum og sparka i hann — en liann sparkar á móti, það getur þú bölvað þér upp á. Þú ættir að sjá á honum fæturna. Það er varla hægt að ejrgja þá. Það er kraftur í strákn- um .... En sko! Guð almáttugur! Þar leggjast þeir nú ofan á hann og núa framan í hann skít og möl — og bara fylla á honum munninn!

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.