Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 14

Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 14
12 N t T T L A N D Það heyrðist allt í einu hlunkur, og Rikka leit við. Hún sá á eftir Hóla- Jónu fram ganginn. Hún gekk álút, með kreppta hnefa. Hún hvarf fram í forstofuna. Rikka leit snöggt út i gluggann. Hún beit á vörina af ó- þreygju, og bakhlutinn á henni ókst fram og aftur, eins og þar væri eins- konar aflstöð eftirvæntingarinar .... Svona! Þarna kom nú .Tóna fyrir hornið! Guð komi til! Hún var alveg rauðblá i framan — og bað skein i hvítan og sterkan tanngarðinn i henni eins og í villidýri. Hún æddi að strák- unum, greip steinhitstaki á heim' Mugg og Steina, og Jrrýsti andlitunum á heim ofan i mölina. Var hún hand- vitlaus, manneskjan! .... Rikka hnykktist til í glugganum og dró sig inn til hálfs .... Og barna kom ólaf- ur sjálfur fyrir húshornið! —- Hver djöfullinn sjálfur er hetta! Er manneskjan svngjandi, handóð! Hann stikaði að Hóla-.Tónu og greip milli herðanna á henni, svo að bunn- ur kjóllinn rifnaði og bað skein i hvitt bak með móleitum rákum eftir óhreint hvottavatn .... Og Jóna sleppti tak- inu af öðrum stráknum og greiddi högg aftur fvrir sig með lausu hend- inni — um leið og hún leit um öxl. Hnefinn lenti á kinninni á ólafi .Tóns- svni útgerðarmanni — og hann riðaði við höggið. Svo liorfðust hau í augu, hann og Hóla-.Tóna. Hún hafði ekki ennbá sleppt nema öðrum stráknum og stóð eins og áður hálfbogin og moð hnefann reiddan. Og Rikka dró sig svo langt inn úr glugganum, að hún rétl aðeins gat fvlgst með hví. sem fram fór. Hún ætlaði ekki að láta nota sig fvrir vitni, ef út i há sálma vrði far- ið. Það vissi guð — og bó. Hvernig ætti hún að geta þagað yfir bessu? Varð þess eiginlega krafist af nokk- urri manneskju, að hún þegði yfir öðru eins? Rarmurinn á lienni gekk i bunguin bylgjum. — Jesús minn! Nú rétti ólafur útgerðarmaður úr sér og benti með silfurbúnum staf fyr- ir húshornið: — Bu-u-rt! Hóla-.Tóna horfði hreyfingarlaus á hann nokkur augnablik. Svo sleppti hún stráknum og greip i brjóstið á Draugafelli, sinu eigin afkvæmi. Og hún rvkkti honum upp, um leið og hún rétti úr sér. Hún horfði í andlit- ið á honum, og bað gerði Rikka lika. Guð minn! En að sjá barnið! Andlitið ekkert nema skítur og möl — og hér og bar blóðtaumar i öllu stássinu! Og fram úr honum stóð malarýringurinn eins og grasfroða fram úr frisandi hesti! Og .... nú sneri hún Hóla-Jóna sér við og sleppti Draugafelli. Hún stóð svo sem andartak kyr — og svo sté liún áfram, langt og bungt, og æddi i áttina til ólafs .Tónssonar, sem hörf- aði hafði dálitið frá. Það var rauð önnur kinnin á ólafi .Tónssvni, en annars var hann fölur. Það kom einliver vanstillingarsvipur á andlitið á honum, begar hann sá bessa breiðu manneskju stefna á sig með krepptn handleggi og hnefa .... Þar honaði hann á hæl og reiddl upp stafinn. Guð! Siá hann nú í framan! Hann bjóst við, hún stykki á sig! Og barna barði hann hana með stafnum. Nei. hún greip um hann — nú með báð- um höndum -— og barna rvkkti hún i! Rikka iðaði og vipraði til andlitið. .... Þar náði hún stafnum, lyfti upp fætinum og brá stafnum á hné sér!

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.