Hlín - 01.01.1935, Blaðsíða 52
smíðar verksmiðjan kassa undir ýmsar iðnvörur, t. d.
kex, konfekt, súkkulaðí, brjóstsykur og ýmiskonar
niðursuðuvöi'ur og sápu. — Framleiðendur keppast nú
við að bæta vörur sínar sem mest, og er það í fylsta
niáta heilbrigt og sálfsagt, en það væri ekki úr vegi að
athuga líka umbúðirnar, sem vörurnar eru síðan látn-
ar í. Það virðist vera ósamræmi í því og ekki smekk-
legt að láta vöru, eftir að til hennar hefur venð* vand-
að svo sem hægt cr, í gamla kassa, óhreina og illa út-
lítandi, þó þeir sjeu nokkrum aurum ódýrari en nýir,
þar sem fáanlegir eru kassar hjer á staðnum við hvers
manns og hverrar vöru hæfi.
Það stóð orðið verksmiðjunni mjög fyrir þrifum,
hvað framleiðslumöguleika snerti, að húsrúm það, er
hún hafði, var bæði óhentugt og of lítið, og varð þvi
vinnan oft að fara fram úti. Því var það að hafist
var handa á síðasta ári að reisá nýtt verksmiðjuhús,
sem gerir vinnuaðstöðuna þægilegri, með 450 fermetra
gólffleti og timburgeymslu af svipaðri stærð. Auk þess
var bætt við nýjum vjelum, svo vínnan getur nú geng-
ið mjög greiðlega, eins og sjá má af því að síðastliðinn
aprílmánuð vann verksmiðjan 9000 kassa.
Verksmiðjan hefur einnig fengið sjer tæki til að
brennimerkja (stimpla) kassana, t. d. með nafni, inni-
haldi, firmanafni framleiðanda og vörumerkjum eftir
því sem hver óskar.