Hlín - 01.01.1935, Qupperneq 129
Hlín
127
Úr Borgarfirði er skrifað: — Þú biðm- mig að skrifa þjer
um pressingu á vaðmáli við laugina, sem þú sást hjá mjer hjer
um árið. Það er mjög auðvelt, en til þess þarf að hafa stein-
steypt gólf yfir eða við laugina, svo það sje heitt. — Voðin
er strengd á fjöl, eftir að hún er lituð, og voðarendinn saum-
aður vel niður. Svo er annað stykki saumað þar utan yfir.
Fjölin er síðan lögð á þetta heita gólf og önnur fjöl látin þar
ofan á og þar á þung pressa (grjót). Fjölinni er snúið við
tvisvar sinnum á sólarhring og voðin höfð á, þar til hún er
þur í gegn. Best hefur mjer gengið með litaðar voðir og ekki
lengri en 15—20 ál., ^nnars getur maður átt á hættu að hún
fúni, nenia með sjerstakléga góðu eftirliti, svo sem að strengja
hana um ú fjölinni, þannig að sá endinn, sem ofan á er, sje
hafður undir, og eins að snúa ekki sjaldnar en kvöld og
morgna. En sje voðin stutt og lituð hefur mjer altaf reynst
þetta vel. — Á sama hátt má press^ vaðmál á stórum elda-
vjelum, en tempra verður vel eldinn og gæta þess vandlega að
hann sje hæfilega mikill, svo að voðin ekki brenni. Er sú
pressun engu síður falleg og vamnleg. I. G.
Ef eg' snemma fer á fætur,
fæst á mörgum lilutum bætur,
meðan ennþá grasið grætur,
gott er í bók að líta sjer,
skrifa ijóð í lítið kver,
að öllu fögru gefa gætur,
gleyma næturdofa,
bágt eiga þeir, sem bjarta morgna sota.
Austfirek lcona.
Iðjuleysi er upphafið,
Óyndi þá tekur við,
Lestir feta í fótsporin,
Farðu að vinna, drengur minn!
Gihnul. stalca.
Leiðbeiriandi almennings í heimilisiðnaðarmálum,
Halldóra Bjarnadóttir, verður á Norðurlandi í vetur
(hefur miðstöð á Akureyri),, til þess að eiga hægra
með að leiðbeina fólki í kaupstöðum og kauptúnum
fjórðungsins um söluframleiðslu á ullariðnaði.