Hlín - 01.01.1936, Page 14
12
Hlin
Miðvikudaginn 1. júlí hófst fundur kl. 10 f. h. með
því að sunginn var sálmur.
11. Erindi.
Síðan hjelt Jónína S. Líndal fyrirlestur, sem hún
nefndi: „Vinnuvísindi á heimilum“, stóð erindið yfir
IV2 tíma og var gerður hinn besti rómur að því. Þakk-
aði formaður fyrirlesaranum fyrir hönd fundarins.
12. Heimilisiðnaðarmál.
Framsögumaður: Hólmfríður Pjetursdóttir.
Hóf hún mál sitt með því að lesa upp tillögur og
mjög ýtarlega greinargerð viðvíkjandi heimilisiðnað-
inum frá Halldóru Bjarnadóttur. Ennfremur gerði hún
grein fyrir því, að Kvenfjelag Suður-Þingeyinga hefði
samþykt á aðalfundi sínum, nýafstöðnum, að koma á
námsskeiðum til að kenna fjölbreyttara vjelprjón og
sömuleiðis að gera tilraun með að heimilin sameini
sig um vefnaðarkonu og kaup á tvisti til að auka vefn-
að á heimilunum.
Margar konur tóku til máls og kom þeim öllum sam-
an um, að þörf væri á að áhersla væri lögð á að kenrta
börnum meira verklegt en verið hefur að undanfömu.
Matarhlje.
Kl. 2 hófst fundur að nýju og voru þá samþyktar til-
lögur, sem Halldóra Bjarnadóttir hafði sent fundinum.
1. Fundurinn lítur svo á, að á þessum erfiðu tímum
ættu sem flest kvenfjelög í kaupstöðum landsins að
gangast fyrir því að framleiddur sje söluiðnaður, svo
sem hægt er á heimilunum, til þess að draga úr at-
vinnuleysinu, og skorar á fjelögin að stjórna þeirri
vinnu og lána fje úr sjóðum sínum til þess að hrinda
henni í framkvæmd.
2. Með því að vefnaðarvara og fatakaup eru lxtt fram-