Merki krossins - 01.01.1926, Page 14

Merki krossins - 01.01.1926, Page 14
grimdina í slíkum áföllum, þótt þau eigi sér stað. Þegar því ríki Jesú Krists, sem í sannleika nær til allra manna, er búið að ná réttum tökum á löndum og lýðum, — getum Vér þá efast um, að sá friður, sem kærleikans herra leiðir til jarðar, muni ná fyllilega tökum á fólkinu um heim allan? Það er sá konungur, segjum Vér, sem kom til að friða og fegra alt á jörðu; sem eigi kom til þess að Iáta aðra þjóna sér, heldur til að þjóna öðrum, þótt Hann væri öllum æðri. Það er Hann, sem hefir sannað, að Hann væri fyrirmYnd í auðmýkt og hógværð. Og Hann var það, sem gerði kærleikann að æðsta boðorði sínu, og sagði um leið: »Mitt ok er inndælt, og mín byrði létt«. Já, væri það ekki hin sannasta gæfa fyrir oss alla, ef einstaklingar, félög og ríki létu stjórnast af Jesú Kristi? Þá yrðu mörg sár grædd, svo Vér tökum Oss orð Leós XIII. í munn, er hann beindi til allra biskupa á jörðu. Þá mundu öll réttarvöld aftur ná fullu gildi. Þá mundu dásemdir friðarins fram spretta að nýju, en sverð og spjót hníga úr höndum manna. Þetta mundi verða samstundis sem mennirnir gengu af alhug undir yfirvald Jesú Krists og sýndu Honum sanna hlýðni; samstundis sem mennirnir játuðu einum rómi, að Jesús Kristur er í dýrð Guðs föður*. (Enc. »Annum Sanctum*, 25. maí 1899). (Frh.). Víst ertu Jesú kóngur klár, kóngur dýrðar um eilíf ár, kóngur englanna, kóngur vór, kóngur almættis tignarstór. Hallgrímur Pétursson. — 14 —

x

Merki krossins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.