Hænir


Hænir - 08.03.1924, Side 4

Hænir - 08.03.1924, Side 4
H A: in ik Nýkomið í verzlun Jörgens Þorsteinssonar: Hlýir og góðir inniskór úr flosi og taui, botnarnir óslít- andi. Allar stærðir, frá nr. 26—47, verð frá 1,80—4,50. Margar tegundir af handsápum og raksápum. Gilette- blöð. Einnig fæst saltfiskur. — Laukur. — Maccaroni. Ágæt Epli — Appelsínur & Vínber. Blómsturfræ kom með Goöafoss. Lyfjabuðin . irnir voru á land komnir. Sumir þeirra höfðu hrakist í lendingunni, og frost harka var mikil. En það hjálpaði þeim mikið, að þeir kom- ust inn í geymsluskúr á fjörunni, sem var mátulega lítill til þess, að halda á þeim hita, unz hægt var að ná þeim yfir fjörðinn á bát frá Höfn. Og komust þeir þangað óskaddaðir, og úr því þarf ekki að spyrja um hvernig farið hefir um þá. „Rán“ var eign Vilhjálms Árna- sonar, útgerðarmanns á Hánefs- stöðum og sona hans og Herm. Þorsteinssonar, kaupmanns. Líf mannanna er fyrir mestu, og eins og björgun þeirra bræði yfir fjárhagslega tjónið. En tap mikið líður útvegurínn hér á Austfjörðum við þennan farkosts- missi, sérstaklega þegar litið er tii atvinnu þeirrar, sem í vændum var og veiðarinnar. Mun nú í þessum ofsaveðrum í haust og vetur vera farnir 4 vél- bátar og 1 vélskip í sjóinn, hér á Austurlandi, og er það enginn smáræðishnekkir fyrir fiskiflotann og þá er atvinnu stunda við hann. Auk þess, sem bæði bátar og skip hafa skemst og ekki orðin sjó fær enn. Fiskiskip hér austanlands eru cnnþá oflítil. þau þurfa að stækka það er lífsnauðsýn. Vélskipið „Óðinn“ lagði út til fiskiveiða fyrri mið- vikudag, og varð því úti í bylnum. Voru menn orðnir yfirleitt mjög hræddir um að því hefði hlekst á því þrátt fyrir spurnir og leitir, kunni enginn eitt til þess aö segja. Voru þar 15 manns um borð, og því engin furða þótt menn væru þungt hugsandi. Því varð gleðin yfirleitt meiri í gærmörgun er fáni var dreginn að hún hjá útgerðarstjóranum og einum aðaleigandanum St. Th. Jónssyni, og sagan flaug um bæ- inn um að það væri í tilefni af því að „Óðinn“ væri kominn í leitirnar. Kom hann í gærmorgun heilu og höldnu inn á Djúpavog. Hafði hann látið undan síga stór- viðrinu og komst 200 sjómílur áleiöis til Færeyja, eða liðlega 2/s af leiðinni þangað. Friðrik Steinsson, skipstj. á Eskifirði hefir nýlega keypt 70 smálesta gufuskip, línuveiðara í Noregi. Var hann lagður af staö tveim dögum fyrir hríðina, á því hingað til lands. Norðaustan við Fæieyjar komst hann í hann krappan fyrir alvöru, Þar brotn- aði og tók út alt af skipinu, sem losnað gat ofan þilja, meðal annars fóru báðir kompásar, svo nú varð að sigla áttavitalaust. Sneri hann skipinu undan og ætl- aði að reyna að hitta Færeyjar, en hríðin var svo dimm, að það tókst ekki, enda ekki girnilegt að fara þar of nærrí í öskubyl komp- áslaus. 1 ók hann þá það ráð, að breyta stefnunni í áttina til Nor- egs, og náði þangaö eigi ver leik- inn en orðið var á þriðjudag. Sigfús Jón Oddsson, bóndi að Siaffelli í Fellum, and- aðist að heimili sínu þann 23. janúar 1924, úr lungnaból^u. Hann var fæddur að Hreiðars- stöðum í Fellum 4. október 1865, sonur heiðurshjónanna Odds bónda Jónssonar ogSólveigarQuðmunds- dóttur, er bjuggu þar alian sinn búskap. Börn þeirra Odds og Sólveigar voru 10 alls, 8 stúlkur og 2 piltar; annar dó í æsku, Jón. Sigfús var því eini sonur þeirra. Eftir lát þeirra hjóna tók hann við búinu að sínum parti, og keypti jörðina. Hann giftist 1889 eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Bjarnadóttur frá Hafrafelli í Fell- um (Sveinssonar bónda þar) og vóru þau því rétt 35 ár í hjóna- bandi. 1895 keypti hann Hauks- staði í Vopnafirð', fluttist þaðan aftur að Meðalnesi í Fellum og keypti þá jörð 1897. 1898 keypti hann aftur feðrajörð sína Hreið- arsstaði. En árið 1900 keypti hann Staffeliið, og þar sleit hann sín- um síðustu kröftum. Systur hans eru nú aliar dánar, nema Sesseija, gift Kristjáni Jónssyni, skáldi, að Hrjót í Hjaltastaðaþinghá. — Þær systur voru orðlagðar fyrir mynd- arskap, og voru alla jafnan kall- aðar Hreiðarsstaðasystur, og þektu þá allir kunnugir við hverjar var átt. Þau hjón, Sigfús og Guðrún, eignuðust 10 börn, 2 dóu í æsku en 8 lifa, 4 piltar og 4 stúlkur, öll hin mannvænlegustu, 2 af þeim eru gift og byrjuð að búa, Oddur að Staffelli og Anna að Setbergi í sömu sveit. Auk þessara barna lét hann eftir sig 1 fósturbarn, sem dvelur nú hjá ekkjunni, ásamt 6 börnum þeirra, öllum uppkomn- um. Sigfús heitinn var hár maður vexti og þrekinn að sama skapi. Enda var hann afburðamaður að kröftum. Kom það sér vel fyrir hann, því hann var starfsmaður svo mikill, að eg þekki ekki ann- an meiri, enda þurfa mörg og mikil handtök til að vinna fyrir svo stórum barnahóp með góöri afkomu, og þar að auki hafa 4 sinnum jarðaskifti og bæta allar að einhverju leyti, þó liggja mestu verkin eftir hann á síðustu ábýlis- jörðinni hans, Staffelli, þar sem hann hefir bygt afar vandað hús (baðstofu). Veggir hennar bera með sér snild hans í veggjagjörð. Svo voru og öll hans verk vel af hendi leyst, að áberandi þótti. Sigfús heitinn lét einnig aðra njóta atorku sinnar. Hann dró sig ekki í hlé með að rétta nágrönnum sínum hjálparhönd. Ég skil ekki að einhverjir, sem nú lifa, minnist ekki að hafa orðið aðnjótandi hinna miklu handtaka hans. Og ég veit, að hann kallaöi ekki altaf eftir fullkominni borgun fyrir þau. Það var honum nægi- leg borgun, ef hann sá að hjálp sín hafði komið að notum. Hinn látni var friðsamur mað- ur. Ég, sem þekti liann frá æsku, og þessar línur rita, veit ekki til að hann hafi nokkurn tíma átt í brösum við nokkurn mann, hvorki í einu eða öðru. Enda var hann trúmaöur í orðsins fylsta skiln- ingi. Sást það glögt á allri hans breytni, bæði til orða og verka. Hann sagði við rnig síðast er við hittumst: „Ég er nú þegar hættur að lifa í þessum heimi. Það er nú ekki hægt að segja aö annað sé eftir af mér í hon- um en það, sem tilheyrir jörðinni. En ég vonast til að hafa uppalið börnin tnín svo, að mér sé óhætt aö vera rólegum þeirra vegna. Nú er ég tilbúinn aö hafa síðustu viðskiftin, og vonast fyllilega eftir að þar líði.mér bezt“. Sigfús heitinn var jarðaður að Ási í Fellum (við hlið foreldra sinna) að viðstöddu fjölmenni, hinn 8. febrúar. Séra Haraldur í Hofteigi hélt húskveðjuna, og að henni endaðri flutti hann kvæði eftir frænda hins látna, Sigfús Sig- fússon, skáld, á Seyðisfirði. l’ór- arinn, prestur að Valþjófsstað, jarðsöng. Eskifirði, 20. febrúar 1924. B. Eiríksson. Söngsamkorna. Herra Guðmundur Kristjánsson boðaði til söngskemtunar hér, eins og til stóð, síðasta sunnudag, þeg- ar „Goðafoss" kom. Fjöldi fólks sótti samkomuna til þess, af hljómbrunni hins nýja söngvara, að svala söngþorsta sálar sinnar. En því miður verður varla hjá því komist að gruna, að það hafi orðiö fyrir vonbrigðum. En þaö er ilt, þegar uíanfarir ungra manna verða til þess, að þeir fái svo lítið álit á þjóðsinni, að þeir haldi aö hún sé svo fá- kæn og dómgreindarlaus, að hægt sé að bjóða henni uppá hvað sern er á sviði listarinnar. Fyrir þá menn er sannarlega ver farið en heima setið. Og seinna munu þeir sjá, að þeim hefir skjátlast hrapallega, þó ve) geti þeir verið, bæði fyrir sig og aðra, hrókar alls fagnaðar í heimahúsum. Frú Karen Christjani, lék á hljóðfærið, söngvaranum til að- stoðar, og geröi það svo vel, að ef alt hefði verið eftir því hefði vel mátt við una. Lát konunnarGuðrúnar Stefánsdóttur hér í bænum, barst rétt í því að blaðið var að fara í pressuna; hafði hún andast í nótt. Hún var rúmlega 90 ára gömul. Hún var móðir húsfrú Jónínu Stefánsdóttur ekkju Böðvars sál. Stefánssonar á Búðareyri hér í bænum. Happdrætti. Um happdrætti Styrktarsjóðs sjúklinga á Vífilsstöðum var dreg- ið 12. febrúar þ. árs, og komu upp þessi númer: 1. Vinningur nr. 4025 2. —„ 3106 3* n n 12595 4- „ „ 9515 n n 9121 6* n n 9322 Vinninganna má vitja til giafd- kera Slyrktarsjóðsins á Vífilsstöð- um. Skip. E. s. „Goðafoss11 og e. s. „Fsja" komu hingað bæði á sunnudaginn var. Hingað komu: Fr. Jörgensen símritari og frú, ungfrú Petersen, Einar Methúsalems- son, heildsölustjóri. Herm. Þorsteins- son, kaupmaöur, Stefán P. Runólfsson, trésmiður, Jón E. Waage. verzlunarstj. Þórarinn Söring, veitingamaður, Stefán Bjarnarson, fyrv. bóndi, Jóhan Petter- sen, trésmiður, Þortseinn Jakobsson, póstur, Eskifirði. Með „Goðafoss11 komu, og fóru með „Esjuséra Magnús Bl. Jónsson, Valla- nesi, og Helgi Sveinsson.fyrv. bankastj. Sprengidufl eru ennþá á reki. Að vesturströnd Jót- lands hafa 3 rekið fyrir skömmu, og á- litið að hafa verið ensk upprunalega. Sfmslit hafa verið mikil þessa viku. Því hafa fréttaskeyti ekki komiö nema mjög slitrótt, og síðan á fimtu- dagskvöld kl. hálfellefu alls ekki neitt. Búist við því á hverri stundu. í gær var sambandslaust héðan til Rvíkur. Samband kom á snöggvast út úr miðnætti. Vegna þrengsla verður margt að bíða næsta blaðs.

x

Hænir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.