Hlín - 01.01.1951, Síða 121
Hlin
119
laugssyni á Núpi og konu hans, Rakel Jónsdóttur, 1100
kr., sem á að ávaxast og verja til að verðlauna húsmæður,
sem á einhvern hátt skara fram úr í góðri heimilisstjórn.
Þá hefur Sambandið leyft sjer að gera frú Þórdísi Egils-
dóttur að heiðursfjelaga sínum, fyrir hennar þjóðkunnu
list í ullariðnaði. Elefur hún heiðrað Sambandið með því
að gefa því gullfallega ullarhyrnu, sem hún hefur unnið.
Árið 1943, þegar Kvenfjelagasamband íslands endur-
skoðar sín lög og starfstilhögun og heldur Landsþing, sem
höfðu fallið niður um nokkur ár á styrjaldartímanum, þá
batnar fjárhagurinn og Sambandið fær aukinn styrk og
skilning frá K. í., enda kemst starfsemin þá í fastara form
með skýrslusöfnun o. s. frv. — Þá er ákveðið að Samband-
ið greiði 1/3 af kaupi kennara á námskeiðunum, sem
fjelögin halda.
Oft hafa lög Sambandsins verið rædd á fundunum, og
nú fyrir tveimur árum endursamin í samráði við fyr-
verandi framkvæmdarstjóra K. í., Svövu Þorleifsdóttur.
Þeim hefur verið útbýtt til fjelaganna.
Kvenfjelögin hafa lagt fram fje til eins herbergis á Hall-
veigarstöðum, 10,000 þús. kr.
Samgöngur og erfiðleikar hafa verið miklir hjer á Vest-
fjörðum, svo við höfum oft ekki getað haft fundina fyr
en seinni part sumars, enda höfum við sjaldan fengið
heimsóknir frá stjórn K. í. — Einu sinni kom þó Aðal-
björg Sigurðardóttir hingað vestur, og þá einnig Katrín
Pálsdóttir, frá Kvenrjettindafjelaginu, og í eitt skifti þá-
verandi framkvæmdastjóri K. í., Svava Þorleifsdóttir, og
nú höfum við þá ánægju að hafa eina stjórnarkonu K. í.,
sem jafnframt er framkvæmdarstjóri þess, Rannveigu
Þorsteinsdóttur, alþingismann. — Jeg get þessa hjer vegna
þess, að það var fastur liður hjá stjórn K. í. að heimsækja
ársfundi þeirra Sambanda, sem betur voru sett með sam-
göngur, en við urðunr að bjarga okkur sjálfar.
Nú eftir 20 ár vaknar sú spurning: „Hvert er það gagn
sem við gerðum?“ Hafa óskir skáldkonunnar rætst, er hún