Hlín - 01.01.1967, Page 126
Askov lýðháskóli á Jótlandi.
Viðtal: Lárus Rist, íþróttakennari og Estrid Brekkan,
skjalaþýðari.
Askov lýðháskóli varð 100 ára 1965. — Hann er ein hin
merkasta skólastofnun á Norðurlöndum. — Þar hlutu
fjölmargir íslendingar fræðslu, og urðu fyrir sterkum
þjóðlegum og kristilegum áhrifum.
Það er almenn skoðun, að þau áhrif, sem ungir íslend-
ingar urðu fyrir í lýðháskólum Norðurlanda, hafi leitt
til stofnunar Ungmennafjelags íslands.
Fyrsta fjelagið var stofnað á Akureyri 1905, og er
fjelagsskapurinn því rúmlega 60 ára gamall. — Alment
er álitið, að Ungmennafjelögin á íslandi hafi eiginlega
komið í stað lýðháskólanna á hinum Norðurlöndunum.
Ungmennafjelögin náðu feyknamikilli útbreiðslu hjer á
landi og höfðu mikil og merk áhrif á stefnu, störf og
hugsunarhátt íslensks æskulýðs.
Myndin ásamt nöfnum, er birt að gamni í „Hlín“,
vegna þess að fjölmargir íslendingar hafa bæði heyrt og
sjeð margt um þá merku stofnun og starfsmenn hennar.
Lárus Rist, kennari og íþróttafrömuður, sagði mjer
ýmislegt um myndina, þegar hann dvaldi hjerna hjá okk-
ur í Hjeraðshælinu á Blönduósi nokkra daga 1964. —
Lárus var Askovmaður af lífi og sál.
En mestar og bestar upplýsingar eru frá frú Estrid
Brekkan, ekkja Friðriks Brekkans, skálds. — Þau hjón
kyntust þar, og frú Estrid hefur æ síðan fylgst með öllu
á Askov, störfum skólans og stefnu, alt fram á þennan
dag.