Búnaðarrit - 01.01.1967, Side 90
32
BUNAÐAKRIT
fulltrúi, skipulögðum námskeiðið, sem lialdið var í húsa-
kynnum Æskulýðsráðs við Fríkirkjuveg, auk þess sem
farnar voru stuttar ferðir með unglingum. Mjög mikil
aðsókn var að námskeiðinu. Ekki var liægt að taka nálægt
því alla með, sem óskuðu eftir þátttöku. Námskeið sem
þetta er að sjálfsögðu fyrst og fremst kynningarstarfsemi,
því að unglingarnir læra lítið sem ekkert í bústörfum,
enda ekki við því að búast á svo stuttum tíma. En þeir fá
smávegis þekkingu á landbúnaðinum, og þessi kynning
stuðlar eflaust að því að skapa aukið traust þessara bæj-
arbúa á bændum og þeirra störfum, og er það nokkurs
virði, því að þessir unglingar em neytendur landbúnaðar-
afurða, og eiga eftir að verða fullvaxið fólk, en mikið
liefur skort á, að þeir, sem eldri eru, geri sér nægilega
grein fyrir mikilvægi landbúnaðarins í þjóðarbúskapn-
um.
Ráðunautar Búnaðarfélagsins og formaður Búnaðar-
félagsins töluðu við unglingana, og sýndar vom kvik-
myndir. Forráðamenn Hestamannafélagsins Fáks sýndu
námskeiðinu mikla vinsemd, lánuðu hesta og lögðu til
kennara, án þess að taka nokkra þóknun fyrir. Mjólkur-
stöðin í Reykjavík og Sláturfélag Suðurlands við Skúla-
götu voru lieimsótt.
Utanferðir
Á síðastliðnu ári fór ég þrjár ferðir til litlanda. Fyrstu
ferðina fór ég í boði Vicon-verksmiðjanna í Hollandi, en
Árni Gestsson, forstjóri Globus lif., kom því boði á fram-
færi, en það fyrirtæki hefur, eins og kunnugt er, flutt
inn landbiinaðarvélar frá Vicon, sem reynzt hafa mjög
vel bér á landi. Þessa ferð mína til Hollands hefi ég
skrifað um í Frey í 3. og 4. tbl. 1966.
önnur ferðin var farin til Helsingfors á 10. alþjóðlegu
grasræktarráðstefnuna. Þarna vom saman komnir lielztu