Búnaðarrit - 01.01.1970, Blaðsíða 23
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA 17
firna jarSrask, því undir Framengjum er hraun og jarS-
vegur ekki öllu dýpri en 1—2 m.
Talið er, að þegar um flutning Suðurár er að ræða,
sé um tvær leiðir að velja. önnur er sú að fara með hana
beinustu leið í upptök Krákár, en hin leiðin í Svartár-
vatn, og flytja svo árnar saman bæði í jarðgöngum gegn-
um holt og liæðir og í opnum farvegi í ICráká. Hvor
leiðin, sem verður farin, þá er jafnvíst, að Svartárvatn
eyðileggst sem veiðivatn, en þar er nú ágæt silungsveiði,
og svo hefur verið síðan Þórður Flóventsson lióf fiskirækt
sína þar. Eyðileggist veiði í Svartárvatni, er byggð í
Svartárkoti í hættu.
Eftirtaldar jarðir eiga engjalönd í Framengjum:
1. Baldursheimur og Þórólfslivoll, þar búa 3 bændur.
2. Litla-Strönd, þar búa 2 bændur.
3. Gautlönd, þar búa 2 bændur.
4. Álftagerði, þar búa 4 bændur.
5. Skútustaðir, þar búa 2 bændur.
6. Garður, þar búa 2 bændur.
7. Grænavatn, þar búa 3 bændur.
Á þessum jörðum búa 18 bændur, en þar sem nokkur
félagsbú eru á þessu svæði, eru eigendur búanna eitt-
hvað fleiri en liinir lögskráðu bændur. Framgenginn
bústofn á þessum jörðum var vorið 1968: Kýr 76, geld-
neyti 21, sauðfé 2875 og liross 34. Fóðurþörf þessa bú-
penings var 10.566 heyhestar. Hér skal engin tilraun
gerð til að meta það tjón, sem þessir 18 bændur bíða við
það, ef öll þessi ágætu engjalönd fara undir vatn. En
víst er, að til stórlinekkis liorfir um búskap á þessum
jörðum, ef svo fer. Og líkur til, að sumar þessara jarða
verði óbyggilegar. Óhugnanlegt er að búa, þar sem vatn
flæðir heim á túnjaðra allra þessara jarða nema einnar.
Laxárdalur
er ekki þéttsetin sveit, en bæði fagur og búsældarlegur.
Laxá er djásn dalsins, liggur eins og risasilfurband á
2