Búnaðarrit - 01.01.1970, Side 375
HRÚTASÝNINCAR
369
hrútar voru sýndir að þessu sinni. Á héraðssýningu voru
valdir eftirtaldir lirútar; Gils Jökulsson 75 í Tungu, œtt-
aður frá Gilsá í Breiðdal og hlaut liann I. verðlaun A,
en Svanur á Brekkuborg og Hnífill, 1 v., á Gestsstöðum
hlutu I. verðlaun B. Til vara á héraðssýningu voru valdir
Hjörsi á Eyri, ættaður frá Lágafelli í Breiðdal, Hringur
á Kjappeyri og Mjaklur Ketilsson á Kolfreyjustað, ætt-
aður frá Sandbrekku í Hjaltastaðarþinghá. Augljóst er,
að bændur í hreppnum verða að leggja sig fram um fjár-
val, uppeldi og fóðrun hrúta sinna á næstu árum.
Stöðvarhreppur. Þar voru sýndir 10 hrútar, 8 full-
orðnir, sem vógu 94.1 kg, og 2 veturgamlir, er vógu 83.0
kg. Fyrstu verðlaun hlutu 4 eða 40.0% sýndra lirúta.
Hnaukur í Sætúni, ættaður frá Hnaukum í Álftafirði og
Hörður á Óseyri voru jafnbezlir af eldri hrútum, Ljómi
Hnauksson í Sætúni heztur af veturgömlum. Prúður á
Óseyri og Kubbur í Stöð eru vel livítir.
BreiSdalshreppur. Þar voru sýndir 48 hrútar, 37 full-
orðnir, sem vógu 92.3 kg og 11 veturgamlir, er vógu
74.2 kg, báðir ahlursflokkar voru iéttari en jafnaldrar
þeirra 1965, og betri hluti hrútanna nú ekki jafnfág-
aður og þeir betri voru fyrir fjórum árum. Of stór
hluti lirútanna framþunnir og spjaldgrannir, þó nokkr-
ir háfættir, mislitir lirútar yfirleitt lélegir. Fyrstu verð-
laun hlut 22 eða 45.8% sýndra lirúta, sem er lakari
röðun en var 1965, og voru þó færri hrútar sýndir
að þessu sinni. Á héraðssýningu voru valdir eftirtaldir
hrútar: Kubbur Pjakksson 74 og Hringur, 2 v., á Giisá,
Spakur 75 á Skjöldólfsstöðum, ættaður frá Gilsá og
Gauti á Hlíðarenda, er hlutu I. verðlaun A, og Skúfur
Flókason 50 í Höskuldsstaðaseli, ættaður frá Reyðará
í Lóni, sem lilaut I verðlaun B. Til vara voru vaidir
Kolur á Skjöldólfsstöðum, ættaður frá Lágafelli og Selur
í Höskuldsstaðaseli. Skúfur og Selur eru vel hvítir, og
Kóngur Gautason í Tungufelli, ættaður frá Hlíðarenda,
24