Búnaðarrit - 01.01.1970, Side 254
248
BUNAÐARRIT
víða vænni en í fyrra, en mun rýrari víða á Suðnr- og
Vesturlandi. Ekki liggja fyrir tölur um stórgripaslátrun,
en meira mun Jiafa verið slátrað af nautgripum en í
venjulegu ári. Allmikið magn af stórgripakjöti fer nú
fram lijá sláturliúsum, með því að sumir neytendur kaupa
Jjeint af bændum, og heimaslátrun, bæði sauðfjár og stór-
gripa, fer aftur vaxandi. Slíkt er ólieppileg þróun frá
sjónarmiði lireinlætis, en neyðin kennir naktri konu að
spinna. FóJk gerir þetta vegna fjárskorts. Ef það mögu-
lega getur, þá Jjlátt áfram neitar það að greiða allan
þann milliliðakostnað, sem felJur á kjötið, sérstaklega
stórgripakjöt, við að fara í gegnum sláturliús, lieildsölu
og smásölu.
Framkvœmdir og fjárfesting. Ekki liggja enn fyrir töl-
ur um framkvæmdir bænda á árinu 1969. Framræsla var
þó minni en 1968, og líkur ertt fyrir því, að aðrar rækt-
unarframkvæmdir Jiafi einnig verið minni.
Endanlegar tölur liggja nú fyrir um framkvæmdir
gerðar 1968, sem njóta framlags samkvæmt jarðræktar-
lögum, sjá bls. 39—53.
Ríkisframlag vegna jarðabóta gerðra á árinu 1968 var
krónur 40.969.377,80 vegna vélgrafinna skurða og krónur
72.720.864,20 vegna nýræktar og annarra framkvæmda,
sem njóta framlags samkvæmt jarðræktarlögum, þar með
talið aukaríkisframl. vegna súgþurrkunar kr. 9.724.652,00.
Nokknt minni byggingaframkvæmdir urðu í sveitum
en undanfarin ár, en þó var unnið allmikið að útihúsa-
byggingum. Veitt voru 764 A-lán úr Stofnlánadeild, þ. e.
til iitilnisabygginga, ræktunar, dráttarvélakaupa og til
vinnslustöðva landbúnaðarins og vinnuvéla alls að fjár-
liæð kr. 95.058 þiisund, þar af 6 lán til vinnslustöðva og
ræktunarsambanda að fjárliæð kr. 19.566 þús., en þau
Ján fylgja gengi dolJars illu lieiJli. A-lán urðu alls
kr. 13.037 þúsund lægri en 1968, en allur byggingakostn-
aður stórliækkaði, og sýnir þetta samdrátt framkvæmda.
B-lán til íbúðarliúsabygginga voru 152 að fjárliæð kr.