Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 39
SKÝRSLUR STARFSMANNA
33
aldui' Árnason ekki sinnt þeim öllum. Það var því ákveð-
ið, að ég lilypi þar undir bagga og reyndi að grynnka eitt-
livað á bunkanum. Ég var fyrst í 4 daga með Haraldi við
vatnsveitumœlingar í Skagafirði, en síðan einn við mæl-
ingar í Eyjafirði. Þar kom ég á rösklega 40 bæi. Þessi
mælingaferð stóð yfir 13.—28. september.
Athuganir á rœktunarlandi og jarSrœhtarframkvœmd-
um. Síðari bluta júlí ferðaðist ég um ísafjarðardjúp og
Iagði mat á stærð og gæði ræktunarlands á liverri jörð við
Djúp. Var þetta liður í Inn-Djúpsáætlun og gert í sam-
vinnu við Landnám ríkisins. Hér var farið inn á nýja
braut, en vitneskja um stærð og gæði þess lands, sem unnt
er að rækta, blýtur að vera einn af liyrningarsteinum í
áætlanagerð um ræktun og stækkun búa. Um för þessa um
ísafjarðardjúp skilaði ég skýrslu til Landnáms ríkisins.
1 maí og júní skoðaöi ég og mældi plógræsi, sem gerð
voru í Borgarfirði árið 1972, eftir ])ví sem tími og tæki-
færi gafst til frá skurðamælingum. Ræsin virtust vel flest
koina að góðunx notum og vera eins og til var ætlast.
í nóvemberbyrjun skoðaði ég hagabætur á Snæfellsnesi
með ráðunautum búnaðarsambandsins þar. Þar sem fram-
lög til hagabóta er nýjung í jarðræktarlögum, ríkir nokk-
ur óvissa um, hvernig skuli meta þær við úttekt, og hve-
nær þær skuli teljast útteklarhæfar.
Fundir og nefndarstörf. Eg var ásamt fleirum kjörinn
til að sitja í undirbúningsnefnd fyrir beitartilraun, sem
gera á bér á landi og styrkur fæst til frá þróunarsjóði Sam.
einuðu þjóðanna. Ég sat nokkra fundi í þessari nefnd
fyrri hluta árs og ferðaðist um Suðurland ásamt nokkrum
öðrum nefndarmönnum með Norris, starfsmanni FAO,
sem hingað kom til skrafs og ráðagerða. Var farið binn 4.
júlí um Suðurland, skoðuð beitarlönd, nppblástur og að-
staða til beitartilrauna á nokkrum stöðum.
Mér var falið, ásamt þeim Hirti E. Þórarinssyni og
Katli A. Hannessyni, að gera tillögur um bætur, sem Vega-
gerð ríkisins greiðir fyrir landsspjöll. Hér var um að ræða
3