Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 140
134
BÚNAÐARRIT
Nóvember: Ferð í Rangárvallasýslu og á afrétti þar og
í Hekluliraun ásamt Sigurði Ásgeirssyni. Ferð á Akranes
og í Borgarfjarðarhérað.
Desember: Ferð að Þingvallavatni.
Á þessum ferðalögum eru verkefni þau, að ég lief tal af
sveitarstjórnarmönnum og veiðimönnum. Ég fór í margar
ferðir með refaskyttum og minkaveiðimönnum víðsvegar
um lieimalönd og afrétti, meðfram veiðiám og í varplönd,
til dýraleita og vinnslu dýra. Lagði ég mesta álierzlu á að
aðstoða við minkaleitir, því mikið vantar á, að þær séu
alls staðar framkvæmdar eins og æskilegt væri. Við minka-
leit hef ég að jafnaði meðferðis duglega veiðihunda og
skotvopn, og önnur þau tæki, sem nauðsynleg eru við þau
störf. Mun láta nærri, að um eitt hundrað minkar liafi
verið unnir í þessum ferðum mínum.
Ég lá næturlangt í skotkofum seinnihluta vetrar í Borg-
arfirði, Miðfirði og upp af Blöndudal ásamt skyttum, sem
eiga þessa skotkofa. Við unnum alls 4 dýr, en samtals munu
35 refir liafa verið skotnir frá þessum kofum yfir s.l. vet-
ur. Þar af vann Hermann Stefánsson, Haugi, 19 dýr frá
skotluisi því, sem ég flutti norður haustið áður vegna bit-
varga, sem herjuðu á sauðfé í Miðfirði.
Ég tel mjög mikilvægt varðandi dýraeyðinguna í heild
að liafa sem bezt samband við veiðimennina sjálfa og ræða
við þá um allt, er að gagni má verða við dýrleitir og veið-
ar almennt.
Eyðing svartbaks
Á vegum starfsemi minnar hefur eyðing svartbaks ekki
verið framkvæmd utan þess, sem unnið er með skotvopn-
um, og samkvæmt þeim veiðiskýrslum, sem mér hafa bor-
izt, voru 3.552 svartbakar unnir á árinu á þann hátt.
Þau 10 ára gömlu lagaákvæði, sem í gildi eru um eyð-
ingu svartbaks, ná orðið á engan hátt tilgangi sínum, en
þau liafa þó sannað, að töluverðan fjölda fugla er hægt að