Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 24
18
BÚNAÐARRIT
Bygging verkstæðishússins er nú alllangt komið. Tré-
smíðavélunum var fyrir komið í kjallara hússins,
vinnustofur á annarri hæð og innréttingu nemenda-
herbergja á efstu liæð komin vel á veg.
Stjórn stofnunarinnar var mjög þakklát fyrir fjár-
veitingu þá, er síðasta Alþingi veitti — kr. 25000.00 —
En hins vegar taldi stjórnin óumflýjanlegt að leita
enn til Alþingis og fara þess á leit, að þingið veitti
stofnuninni enn til húsbyggingai innar og véla og á-
haldakaupa, ekki lægri uppliæð en veitt var á síðasta
þingi. Einnig taldi stjórnin þess hrýna þörf, að stofn-
uninni yrði séð fyrir rekstrarfé kr. 12000.00 fyrir
næsta ár, nú þegar framkvæmdir eru að hefjast. Sain-
þykkt var að f; . i þess á leit við stjórn Búnaðaríélags
íslands, að hún komi þessum fjárbeiðnum á fram-
færi við Alþingi.
Samþykkt, að smíðakennsla i smíðaskólanum hefj-
ist um næstu árainót. En þó gelur forstjóri tekið á
inóti nemendum fyrr, ef ásæður leyfa.
Námstími ákveðinn fyrst um sinn 6 mánuðir. Auk
smíðakennslunnar verður reynt að veita nemcudum
nokkra kennslu í islenzku, reikningi og teiknun.
Námsgjald var ákveðið kr. 200.00 á mánuði og vinnn-
timi fullar 7 stundir á dag. Auk þessa verður nem-
endum gefinn kostur á að vinna sjálfum sér að minnsta
kosli 2 stundir á dag, enda greiði þeir efni, er með
þarf lil eigin þarfa.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið. c . T,. .. . „
Sveinn Einarsson, ritan.
Slcýrsla um för búnaðarmálastjúra að íiólmi
í Landbroli.
Dagana 9. 12. október iór ég austur að Hólmi í
Landbroti til þcss að hitta búsljórann á Hólmi og