Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 85
BÚNAÐARRIT
79
Mestum tíma þetla ár hef ég eytt í hrossasöluna til
UNRRA. Þau viðskipti urðu öll mjög erfið og leið
viðureignar. Reyndist þessi stofnun mjög erfið
viðskiplis, svo allar ráðstafanir hér og framkvæmdir
urðu erfiðar og mistakasamar. Þá kom það einnig í
ljós, að bændur almennt liöfðu minni áhuga fyrir að
selja hross en reiknað hafði verið með. Hið auglýsta
verð til bænda (nettó á markaðsstað) var sem hér
segir:
Fyrir 3 vetra hross kr. 420—500.
— 4 — — — 420—600.
— 5—8 vetra hross kr. 550—700.
Verðmismunur var eftir liæð á stangarmáli. Þá mun
það einnig liafa átt einhvern þátt í sölutregðunni, að
verðið var ekki greitt við móttöku hrossanna á kaup-
stefnunum. Veigamest mun þó hafa verið, að seint í
ágúst, þegar UNRRA hafði alveg stöðvað viðskiptin,
svo ekki varð annað séð en stofnunin hefði rift öllum
samningum, þá birti landbúnaðarráðuneytið í útvarpi
skýrslu þá, sem hér fer á eftir:
„Undanfarna mánuði hefur ríkisstjórnin fyrir milli-
göngu Samninganefndar utanrikisviðskipta og sendi-
ráðanna í Washington og London staðið í samning-
um við UNRRA — hjálparstofnun sameinuðu þjóð-
anna — um sölu á hrossum til Póllands, og mun
flestum bændum vera kunnugt um ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið í þessu skyni.
Eftir að samningaumleitanir um verð höfðu geng-
ið í nokkrar vikur, barst Samninganefndinni skeyti
frá sendiherra íslands í Washington, sem er á þessa
leið:
„Mér hefur tekizt að fá UNRRA til að samþykkja
kaup á 7000 hrossum tveggja til 10 vetra, tömdum og
ótömdum. — Af þeim mega ekki vera fleiri en 2000
stykki á aldrinum tveggja, niu og tíu vetra. — Verðið
er 95 dollarar á hross frítt um borð. — Greiðsla verður