Fréttablaðið - 23.08.2010, Blaðsíða 42
26 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
Hinn heimsfrægi Martin Scorsese
er einn af leikstjórum nýrrar sjón-
varpsþáttaraðar, Boardwalk Emp-
ire, sem hefur göngu sína á Stöð 2
í haust. Höfundur þáttanna er Ter-
ence Winter, hinn sami og stóð á
bak við hina vinsælu mafíuþætti,
Sopranos.
Boardwalk Empire kemur úr
smiðju sjónvarpsstöðvarinnar
HBO eins og Sopranos og gerist
í Atlantic City árið 1920 þegar
bannárin eru að hefjast í Banda-
ríkjunum. Þá lagði ríkisstjórnin
blátt bann við sölu áfengis í
landinu, sem varð til þess að
glæpagengi spruttu upp eins
og gorkúlur. Vegna staðsetning-
ar sinnar var Atlantic City kjör-
in til að smygla áfengi en borginni
stjórnaði Enoch „Nucky“ Thomp-
son sem Steve Buscemi leikur. Á
meðal kunnra glæpmanna sem
koma við sögu í þáttunum eru Al
Capone, Lucky Luciano og Arnold
Rothstein.
Þættirnir eru byggðir á bók-
inni Boardwalk Empire: The Birth,
High Times and Corruption of Atl-
antic City eftir Nelson Johnson.
Scorsese stýrir sjónvarpsseríu
VIÐ TÖKUR Martin Scorsese við tökur
á Boardwalk Empire.
Söngkonan Beyoncé Knowles
segir það hafa verið eina bestu
stund lífs sín sem listamanns
þegar hún söng fyrir Obama,
Bandaríkjaforseta. „Að syngja
fyrir Barack Obama þegar hann
var vígður inn í embættið var
mikið og persónulegt afrek fyrir
mig, bæði sem listamann og
Bandaríkjamann,“ sagði Bey-
oncé. Hún hefur einnig tjáð sig
um góðgerðarstarfsemi sína en
hún hefur sett á laggirnar bæði
snyrtiskóla og meðferðarstofnun.
„Foreldrar mínir tóku þátt í góð-
gerðarstarfsemi og það sýndi
mér hversu mikilvægt er að gefa
mikið af sér.“
Stolt af söng
fyrir Obama
BEYONCÉ Ein besta stund hennar sem
listamanns var þegar hún söng fyrir
Obama.
Leikarinn Will Smith hefur verið
kjörinn besti leikarinn sem áður
var rappari samkvæmt skoðana-
könnun síðunnar Movietickets.
com. Smith, sem er 41 árs og
hefur leikið í myndum á borð við
Men in Black og Hancock, sigr-
aði með yfirburðum og fékk 58%
atkvæða. Hann var þekktur sem
rapparinn The Fresh Prince áður
en hann sneri sér að leiklistinni. Í
öðru sæti í könnuninni lenti Mark
Wahlberg, áður þekktur sem
Marky Mark, með 23% atkvæða
og TI komst í þriðja sætið með
7% atkvæða. Á eftir þeim komu
Mos Def og Ludacris með 6%
hvor.
Besti fyrrum
rapparinn
WILL SMITH Smith kallaði sig The
Fresh Prince áður en hann sneri sér að
leiklistinni.
> FIMM PÚTTVELLIR
Popparinn og golfáhugamaðurinn Justin
Timberlake hefur látið setja upp fimm
púttvelli fyrir utan heimili sitt í Los Ang-
eles. Þannig getur hann æft sig að
pútta hvenær sem honum dettur
í hug. Púttvellirnir fylgja í kjölfar
körfuboltavallar sem poppar-
inn hafði áður látið koma fyrir.