Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 57
MORGUNN
167
því hefir þótt vænt um, en nú hefir yfirgeíið það; það er
beztu dómararnir um gildi þeirra sannana, er skeytunum
fylgja. Það sannfærist um, að það sé í sambandi við hann, er
það elskar. Hann birtir því það, sem í þess ástríku augum er
dásamlegar opinberanir um hinn andlega lieim. Það veit, að
hann var sannorður og þess vegna hljóta þessar lýsingar að
vera með öllu réttar. Þau hafa þarna fengið það, sem sjálf-
sagt er, að heimurinn fái að vita um. Þau ná sér í útgefanda
og bókin kemur út. Eg hefi lesið mörg slík skeyti, bæði á prenti
og í handriti, sem send hafa verið innan 6 mánaða frá því að
sendandinn lézt.
Mig langar til þess að biðja lesandann að líta á málið
frá þessu sjónarmiði. Hugsum oss, að ungur maður frá einni
af reikistjörnum sólkerfis vors gæti komið til jarðarinnar. Hve
mikla nákvæma fræðslu yrðu honum unt að senda aftur til
sinnar eigin reikistjörnu eftir sex mánaða dvöl hér 'i Iive mik-
ið gæti hann sagt kunningjum sínum af brezka ríkinu, Norð-
urálfunni, Kína, Lapplandi, Afríku, Ástralíu, Melanesíu,
Norður-, Suður- og Mið-Ameríku? Hugsum um þá ólíku lifn-
aðarháttu, klæðnað, tungur, trúarbrögð hvítu, dökku, rauðu
Og gulu kvnþáttanna. Ifugsum um vísindagreinir efnafræð-
innar, vélfræðinnar, eðlisfræðinnar o. s. frv., o. s. frv.
En þegar þessir piltar, sem farið hafa inn í annan lieim,
koma og segja oss frá „himninum", þá nota þeir þar orðatil-
tæki, sem elcki á við eina stjörnu einungis, heldur má vel vera,
að þar sje átt við óteljandi stjörnur, eða eins og vér venju-
lega nefnum þau svið, livert utar öðru, livert öðru stærra og
háleitara að eðli.
Það, sem þeir geta sagt oss frá, er aðeins sú litla skák,
er þeir nú dveljast á, og það er í einum þeirra lægri lieima,
næst jörðunni. Yissulega er það dásamlegt fyrir þá. En jafn-
vel það eina svið verður ekki rannsakað á sex mánuðum með
nægilegri nákvæmni til þess að skeytasendarinn geti gefið
nokkuð, er líkist sannri eða Mlkominni lýsing á því.