Morgunn


Morgunn - 01.06.1943, Síða 74

Morgunn - 01.06.1943, Síða 74
68 MORGUNN trúar og hafði engan áhuga fyrir spiritismanum. Samt var símað og spurt, hvað orðið hefði af fötum gamla mannsins. Þau fundust bundin saman í böggul úti í húsa- garðinum. Systkinin fóru til þess að sækja fötin og tóku með sér mann til að vera vitni. Allt reyndist nákvæmlega eins og dóttur gamla mannsins hafði vitrazt. Gráa skyrt- an var þar með rauða vasanum, saumuðum á með stórum nálarsporum, bersýnilega gerðum af karlmannshendi, og efnið var úr gömlum, rauðum kjól, sem dóttirin hafði átt. Gamli maðurinn hafði gengið að þessu með mikilli leynd, því hvorki vissi dóttirin né aðrir, að hann hefði átt þessa peninga, né heldur að hann hefði gert þennan vasa úr rauða efninu. Önnur atriði í þessu máli voru- einnig f jöl- skyldunni ókunn, eins og t. d. það, hvernig hann hefði verið klæddur, þegar andlát hans bar að. Enn önnur atriði, eins og t. d. peningaseðlarnir og rauði vasinn, voru eng- um manni kunn. Richard Hodgson, hinn kunni vísinda- maður um sálræn efni, rannsakaði málið, og gekk úr skugga um, að staðreyndirnar voru allar eins og hér er frá þeim sagt. Þegar ég er nú búinn að lýsa þessum sígildu sönnunar- gögnum, ætla ég nú að víkja að minni eigin reynslu. Ég hefi ekki orðið spiritisti fyrir annara manna rann- sóknir. I því sambandi skiptir það litlu máli fyrir mig, hverjar uppgötvanir aðrir menn kunna að hafa gert, sann- færing mín er grundvölluð á eigin rannsóknum mínum, og þeirri sannfæring geta heldur engar efasemdir annara manna haggað. Árið 1900 vann ég að því ásamt öðrum, að koma upp Spiritistakirkjunni í Portsmouth. Ég var forseti félagsins og fyrirlesari. Þaðan fór ég til Vestur-Englands, en hafði öðru hvoru bréfaskipti við vini mína í Portsmouth. Árið 1908 var ég að starfa í Clevedon, og þá var það eitt kvöld- ið að ég var að njóta hvíldar eftir dagsverkið. Ég var einn, og þá heyrði ég við mig sagt: „Farðu til Portsmouth á morgun“. „Til hvers?“ spurði ég. „Þeir þurfa þín“, var
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.