Morgunn


Morgunn - 01.06.1961, Page 10

Morgunn - 01.06.1961, Page 10
4 M 0 R G U N N Það sem einna fyrst vakti athygii mína, var að svo merkir menn, ekki fáir með heimsfrægð fyrir önnur vís- indaafrek, höfðu fjallað um málið með jákvæðum árangri, að ef ég mætti ekki taka á þeim nokkurt mark yrði það býsna margt annað, sem ég hafði lært og lesið, sem ég yrði þá að varpa fyrir borð og hætta að taka mark á. Andstæð- ingar málsins reyndu að gera spíritista hlægilega fyrir það, hve þeir treystu mönnum með hin stóru nöfn. Mér þótti það ekkert hlægilegt þá og mér þykir það ekkert hlægilegt enn, að meira sé lagt upp úr því, sem þesskonar menn staðhæfa, en hinu sem borið er fram af mönnum, sem minna vita og minna hafa reynt. Annað, sem ég staðnæmdist við á þeim árum var það, að ekki fáir hinna lærðustu manna höfðu í upphafi gengið að rannsóknunum í þeim tilgangi einum, að afhjúpa það, sem þeir töldu vera blekkingar einar og svik, en urðu að gefast upp að lokum fyrir staðreyndum og láta sannfærast, og sannfærast um það, að í fyrsta lagi væri fyrirbrigðin raunveruleg, og í öðru lagi yrðu sum þeirra ekki á annan skynsamlegri hátt skýrð en svo, að hér væru að verki fram- liðnir menn, sem þrátt fyrir geisilega erfiðleika væru að reyna að færa á það sönnur, að þeir hefðu lifað líkams- dauðann. Það hve þessir menn stóðu óhagganlega við mál- staðinn þrátt fyrir háðið, sem á þeim dundi í byrjun, hve hiklaust þeir lögðu sumir þeirra stórmikinn vísinda- heiður sinn að veði fyrir sannfæringu sinni, þótti mér benda til þess, að sannfæring þeirra væri á bjargi byggð. Og mér hefur alltaf þótt ómaksins vert, að hlusta á slíka menn. Ég átti aðgang að góðum kosti bóka um þessi mál og tók að lesa það, sem ég komst yfir, af ritum beztu sálar- rannsóknamanna, einkum hinna brezku. Sumir þeirra féll- ust aldrei á þá skýringartilgátu spíritista, að sum fyrir- brigðin stöfuðu frá látnum mönnum. En hinir voru miklu fleiri, sem farið hafði svo, að eftir ýtarlegar rannsóknir, og eftir að hafa vegið og metið sönnunargögnin á vogar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.