19. júní


19. júní - 19.06.1955, Síða 22

19. júní - 19.06.1955, Síða 22
hvert og eitt, að koma á fullu launajafnrétti karla og kvenna. Jafnframt var málinu vísað til Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar til athugunar og af- greiðslu. Var safnað um það skýrslum frá aðildar- ríkjunum, málið rætt mikið og gerð samþykkt, sem nefnd er jafnlaunasamþykktin frá 1951. í sam- þykktinni var ákveðið: 1. að hvert aðildarríki skuli stuðla að því og tryggja það með þeirn aðferðum, sem hafðar eru um ákvörðun launataxta, að reglan um jöfn laun til karla og kvenna fyrir jafnverðmæt störf taki til alls starfsfólks. 2. að þessari reglu verði komið á með lögum eða reglugerðum eða með heildarsamningum milli vinnuveitenda og verkamanna. 3. að þar sem slíkt rnyndi greiða fyrir því, að ákvæðum samþykktarinnar sé framfylgt, skuli gera ráðstafanir til að koma á óvilhöllu mati á störfum. Þessi samþykkt gekk í gildi fyrir um það bil tveim árum, eða í nui 1953, og hafa þegar nokkur ríki fullgilt hana. Jafnlaunasamþs kktin skýrir sig sjálf. Hún segir, að ríkin eigi á þann Iiátt, sem vcnjan er að ákvarða iaunataxta, með lagasetningum, reglugerðum og samningmu milli vinnuveitenda og verkafólks, að koma á iaunajafnrétti karla og kvenna. Einnig er rætt um mat á vinnu. Til þess að geta fullgilt þessa samþykkt, þarf hvert ríki að hafa tryggt það, að fullkomið launa- jafnrétti sé komið á innan árs frá fullgildingunni. íslendingar liafa ekki fullgilt samþykktina ennþá, en á Alþingi 1954 var samþykkt þingsályktnn um staðfestingu þessarar samþykktar og var hún á þá leið, að Alþingi ályktaði að skora á ríkisstjórnina að undirbúa nauðsynlegav ráðstafanir til þess, að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nm jöfn laun karla og kvenna fyrir jafnverðmæta vinnu geti orðið staðfest á íslandi. Engar fregnir hafa borizt af þeim undirbúningi. sem ályktunin gerir ráð fyrir, en hann hlýtur, hve- nær sem hann verður gerður, að liggja annað hvort í því, að sett verði lög um fullkomið launajafnrétti karla og kvenna eða að gerðir verði um það heild- arsamningar milli verkafólks og atvinnurekenda, eða ef til vill aðþessar leiðir verði farnar samtímis. Hvernig eigum við að vinna að fullu launajafnrétti? Þetta mál, „jöfn laun karla og kvenna fyrir jafn- verðmæt störf“, er þannig, að konur geta mikið að því unnið. 8 Það var fyrir þrotlausa baráttu mætra kvenna innan hinna alþjóðlegu samtaka, sem þingS. Þ. tók málið þeim tökum, sem það gerði. Nú er það kom- ið heirn til aðildarríkjanna og konur í liverju því landi þar sem jafnlaunasamþykktin liggur fyrir til fullgildingar liafa nú, hver á sínu sviði, það verk- efni að undirbúa jarðveginn fyrir fullgildinguna, í stéttarfélögunum, í stjórnmálaflokkunum, á Al- þingi og í ríkisstjórn. Jafnframt þarf að vinna mál- inu almennt fylgi. Konur þurfa æ meira og meira að gera sig hæfar til hinna vandasamari starfa, og — ef þær á annað borð vinna utan heimilis síns — að beita þekkingu sinni og orku til þess að komast í fremstu röð á vinnumarkaðinum. Lög um jafnan rétt til starfa og reglur um sömu laun fyrir sömu vinnu, verða því aðeins til gagns fyrir konur, að þær kappkosti að þroska sig í starfi sínu og sýni þann metnað, að vilja taka að sér ábyrgðarstörf og löngun til að vanda þau. Launajafnréttið er á leiðinni. Það getur komizt á innan lítils tíma og það getur líka átt nokkurn aðdraganda ennþá. Konur munu allar vilja stuðla að því, að áfanganum um jöfn laun karla og kvenna verði náð sem fyrst. Það geta þær gert með því að vinna málinu fylgi, hvar sem þær hafa áhrif og einnig með því að gera kröfur til sjálfra sín og verða samkeppnisfærar í hverju því starfi, sem þær eru í, eða þær kunna að fá í sambandi við nýjar reglur og bætta aðstöðu í atvinnulífinu. KOSNINGARRÉTTUR KVENNA í SVISS Eins og flestum er kunnugt, er Sviss eina landið í F.vrópu, sem ennþá neitar konnm um kosningar- rétt. Svissneskar konur Iiafa í 48 ár barizt eins og ljón fyrir þessnm sjálfsögðu mannréttindum. Og þess munu fá dæmi, að menn í pólitískri baráttu liafi lagzt svo lágt eins og svissneskir karlmenn hafa gert í baráttu sinni gegn kosningarrétti kvenna. Þegar ég les um þá ósvífni, sem þeim er sýnd, og verður jafnframt hugsað til þess, að eftir að íslenzk- ar konur hafa Iiaft kosningarrétt í 40 ár, á engin kona fast sæti á Alþingi, Joá verður mér á að halda, að það sé ekki enn runnið upp fyrir okkur, hvíhkt feiknavald okkur var afhent með kosningarréttin- um. Ættum við ekki að nota það betur í framtíð- inni en hingað til? S. J. M. 19^ JÚNÍ

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.