19. júní


19. júní - 19.06.1955, Side 53

19. júní - 19.06.1955, Side 53
Rayongarn úr spólu- práöum. Til hœgri: Rayon- trefjur. ir spóluþrœðir. Þeir eru notaðir einir sér, eða þeim er snúið saman í garn til framleiðslu á dúkum, er líkjast silkidúkum, svo sem satíni, tafti, brókaði o. fl. Gerviþræðir eru oft skornir niður í stutta búta, jafnlanga bómullar-, hör- eða ullartrefjum. Kall- ast þeir þá gervitrefjur, og er spunnið úr þeim gani á sama hátt og úr náttúrlegum vefjarefnum. Úr slíku garni eru unnir dúkar, er líkjast bómullar-, hör- eða ullardúkum. Dæmi um þetta eru rayon gabardín og rayon flónel, svo eitthvað af því al- gengasta sé nefnt. Nylon peysur og „spun“-nylon sokkar eru einnig framleidd úr garni af þessu tagi. Gervivefjarefnunum er skipt í tvo flokka: ann- ars vegar þau, sem framleidd eru úr náttúrlegum efnasamböndum, margbrotnum að samsetningu, og liins vegar þau, sem framleidd eru með því að byggja upp efnin úr einföldum samböndum frum- efna. Til fyrri flokks teljast m. a. rayon, acetat og vicara, sem unnin eru úr tré, úrgangsbómull og maískorni. Eru þau einu nafni nefnd hálf-syntetisk gervivefjarefni. Til síðari flokks teljast m. a. nylon (perlon), orlon, dacron, acrilan og dynel. Þau eru unnin úr kolum, jarðolíu, jarðgasi, kalki o. fl., og eru nefnd einu nafni al-sytitetisk gervivefjarefni. Hálf-syntetisk gervivefjarefni. Af hálf-syntetískum gervivefjarefnum eru þrjú algengust. Má þar fyrst nefna rayon. Það er fram- leitt úr sellulósa, öðru nafni tréni. Af því eru tvær tegundir, viskósarayon og koparrayon, sem einnig er oft nefnt Bembergrayon. Viskósarayon er langt- 19. JÚNÍ um algengara (yfir 90% af öllu rayoni) og ódýrara, en Bembergrayon er hins vegar sterkara. Rayon- {rræðir eru í eðli sínu mjög gljáamiklir, en þar sem það þykir ekki eftirsóknarvert, er gljáanum oft eytt að einhverju eða öllu leyti við framleiðslu. Þurrt rayongarn er ekki alveg eins sterkt og garn úr náttúrlegum vefjarefnum, og þegar viskósa- rayongarn blotnar, veikist það enn meir. En rayon- dúkar eru mjúkir og liprir, ódýrir miðað við ullar- og silkidúka og oftáferðarfallegir og eru því mikið notaðir í alls konar fatnað. Acetat (áður nefnt acetatrayon og flokkað með rayoni) er framleitt úr acetat-sellulósa. Acetatdúk- ar eru fallegir og teygjanlegir (krumpast því að öðru jöfnu minna en viskósarayondúkar), en þeir eru viðkvæmir og þurfa nákvæma meðferð, t. d. bráðna þeir undir heitu straujárni. Acetatþræðir GcrvipráÖum... er snúið sam- an í garn,... sem notaö er til fram- leiöslu á dúkum, er likjast silkidúkum. Úr gervi- trefjum ... er spunniö garn ásama hátt og... úr náttúr- legum vefj- arefnum,.. og úr pvi unn- ir dúkar, sem likjast bómull- ar-, hör- eöa ullardúkum. 39

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.