19. júní


19. júní - 19.06.1955, Side 60

19. júní - 19.06.1955, Side 60
Reykjavíkur. Fylgdist frá Kristín alla tíð með miklum áhuga að framgangi þessara tveggja fé- laga, þó að eigi gæti hún, sökum anna, tekið virkan þátt í störfum þeirra nerna fyrstu árin. Sá, er dvelur meðal blóma og barna, stendur ekki einn. Gróður beggja er göfugt viðfangsefni. IJað varð starf Kristínar í Gróðrarstöðinni að hlúa að hvorutveggja. í gróðrarstöð Einars og Kristínar óx og dafnaði elskulegur barnahópur, börn Eiríks Einarssonar húsameistara, einkasonar þeirra hjóna og börn fóstursonarins, Aðalsteins Norltergs. lJar kunnu börnin vel við sig og voru augasteinar ömmu sinnar. Elzt þeirra er Kristín Eiríksdóttir, er varð til þess að hlúa að ömmu sinni og vefja að henni sængina í hinzta sinn, er hún kom inn í her- bergið hennar kvöld þess fyrsta sumardags árið 1954. Skriíað á sumardaginn fyrsta árið 1955. Lanfey Villijálmsdóttir. Guðrún Ásmundsdóttir Guðrún Ásmundsdóttir var ákaflega góð félags- kona, samvinnuþýð og velviljuð, og mátti heita að hún starfaði að félagsmálum kvenna hér í bæ með- an heilsa og líf entist. Hún var meðlimur í K. R. F. í. frá stofnun þess. Þegar félagið gekkst fyrir, að komið væri upp vinnumiðstöð kvenna árið 1931, veitti hún því starfi forstöðu frá upphafi til ársins 1942, er hún tók við skrifstofustörfum Itjá Mæðrastyrksnefnd, en sú nei'nd var einnig stofnuð af Kvenréttindafé- lagi íslands. Ohætt er að fullyrða, að Guðrún hefur unnið mikið og vandasamt starf, bæði meðan hún vann við Vinnumiðstöðina, og eins hjá Mæðrastyrks- nefnd. Ég hygg að á báðum stöðum hafi þurft á lipurð, sanngirni og samúð að halda, en öllum þess- um kostum var Guðrún búin. Það er líka hægt að sjá, Iivaða álit formaðurinn, Laufey Valdimarsdótt- ir, liafði á starfshæfileikum hennar, því að þegar Mæðrastyrksnefndin fór að starfrækja sumarheim- ili sitt fyrir fátækar mæður og börn, þá fékk hún Guðrúnu til að veita því forstöðu, en fáir voru gleggri á að sjá hæfileika fólks út en Laufey, og vita, hvaða sæti hverjum bar að skipa, svo vel færi á. GuÖrún Ásmundsdóttir í mörg sumur var Guðrún húsmóðir á þessu mæðraheimili nefndarinnar, en hinn tímann á skrifstofunni. Það var alls ekki vandalaust að rækja húsmóðurskyldu á svo mannmörgu heimili. Oft var við marga erfiðleika að etja, bæði hvað húsnæði og fleira snerti, en allt gekk vel og aldrei kvartaði Guðrún, og því síður þeir er hjá henni dvöldu. Mun ekki vera ofmælt, þó að ég segi, að hún hafi verið elskuð og virt af öllum, er hjá henni dvöldu. í mörg ár kenndi Guðrún handavinnu, list- saum, hjá Heimilisiðnarfélagi íslands. Af þessu má sjá, að Guðrún lagði gjörf'a liönd á fleira en eitt. Það er margra álit, að kona, sem mikið vinnur utan heimilis, afræki sitt eigið lieim- ili, og væri kannske ekki svo óeðlilegt. En svo var ekki með Guðrúnu. Ég, sem þetta rita, kom oft inn á heimili hennar, og þar andaði allt af þrilnaði og reglusemi, og bar órækan vott um þokka húsmóð- urinnar. Sömuleiðis sýndi hin ástúðlega sambúð milli hennar ogbarnanna, hversu mikil móðirhún var. Heimili hennar kynntist ég lítið fyrr en eftir lát manns hennar, en ég efast ekki um að sem eiginkonu hafi mátt sama um hana segja Guðrún Ásmundsdóttir var fædd 7. apríl 1887 að Krossi í Lundarreykjadal í Borgarfjarðarsýslu. Mjög ung fluttist hún að Fúlutjörn við Lauga- land, til föðurbróður síns, Jóns Guðmundssonar austanpósts, þar sem hún ólst upp. Árið 1907, hinn 19. okt., giftist hún Jóni Bárðarsyni klæðskera- meistara. Bjuggu þau hjónin alltaf í Reykjavík. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, sent öl 1 eru á lífi: Jón skipherra, giftur Friðbjörgu Sigurð- 19. JÚNÍ 46

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.