Íslendingur - 15.02.1963, Qupperneq 2
Mikiar byggingaframkvæmdir
LÁRUS EFSTUR EFT-
IR 4 UMFERÐIR
Siglufirði, 12. febr. Hér er verið
að hefja ýmsar byggingar í
bænum á vegum opinberra og
hálfopinberra aðila og aðrar í
undirbúningi. Má þar fyrst
nefna byggingu nýs póst- og
símahúss á lóð póst- og síma-
málastjórnarinnar við Aðalgötu
24, þar sem hið eldra póst- og
símahús stendur. Á að byggja
það í tveim áföngum, fyrst norð
an við byggingu þá, sem fyrir
er, og þegar hin nýja bygging
verður tekin í notkun, verður
hin eldri rifin og byggð upp að
nýju. í framhaldi af þessum
framkvæmdum er reiknað með,
að við fáum hér sjálfvirkan
síma.
Á lóðinni Suðurgata 4 ofan
Ráðhústorgs er Kaupfélag Sigl-
firðinga að hefja byggingu verzl
unarhúss, og með vorinu er gert
ráð fyrir að hefja byggingu 8
íbúða Verkamannabústaða við
Hafnargötu.
í byggingu er nýtt sjúkrahús
og bókhlaða. Þá eru Kaupfélag
Eyfirðinga og Kaupfélag Skag-
firðinga að byggja sameiginlega
m j ólkur dreifingarstöð.
Héðan eru gerðir út 5 dekk-
bátar. Er afli Jieirra sæmilegur
og unnið úr honum í tveim
frystihúsum. Niðurlagningar-
verksmiðja, sem framleiðir svo-
HITI í BOTNI BOR-
HOLUNNAR 80 STIG
Húsavík í gær. Norðurlandsbor-
inn, sem liér hefur verið að
verki, er nú kominn í fyrri bor-
holunni niður í rúmlega 600 m
dýpi, og er jarðhitinn þar um
eða yfir 80 stig. Verður haldið
áfram að bora þar niður á a.
m. k. 800 metra, ef jarðlagið
kólnar ekki. Enn er unnið nótt
og dag. Joðge.
Fært um allar jarðir
Kópaskeri, 12. febr. Hér hefur
verið óvenjuleg veðurblíða að
undanförnu, og eru vegir fær-
ir svo sem bezt er að sumarlagi
um svo að segja alla sýsluna.
Ekki alls fyrr ló'ngu sóttu menn
frá Möðrudal á Fjöllum þorra-
blót niður í Axarfjörð og bar
hratt yfir á bílnum, en þorra-
blót og hjónaböll eru helztu
samkvæmin hér í strjálbýlinu.
Samgöngur hafa verið með
ágætum vestur um til Akur-
eyrar.
Héðan er gerður út einn níu
tonna dekkbátur, en afli hans
er fremur lítill, þótt segja megi
að gefi á sjó daglega.
Ýmislegt er hér hugsað til
framkvæmda, sem dragast
vegna skorts á vinnuafli. Má
segja, að fólk vanti til alls, sem
gera þarf. jþ.
nefnda „Sigló-síld“ hefur starf-
að síðan í haust, en hún var sem
kunnugt er stofnuð í fyrravet-
ur, og vann þá úr allmiklu
magni, en starfar ekki yfir sum-
arið. Framleiðsla hennar er að-
allega seld innanlands, en sýn-
ishorn hafa verið send út, án
þes að komið hafi til samninga
um útflutning, enda hefur fram-
leiðslan til þessa selzt jafnótt
innanlands.
Eins og að undanförun starf-
ar Tunnuverksmiðjan hér í vet-
ur, og er atvinna óvenju mikil
á þessum tíma árs. Af hinu
leiða, árstíðabundna atvinnu-
leysi, sem lá eins og mara á
Siglfirðingum árum saman fyrir
skömmu, vitum við nú eltki í
dag. S. F.
SKÁKÞING Norðlendinga hófst
hér sl. sunnudag. Formaður
Skákfélags Akureyrar, Jón Ingi
marsson, setti þingið og bauð
keppendur velkomna. Tefldar
voru 2 umferðir þann dag, og
síðan er öðrum tveim lokið. í
meistaraflokki tefla 11, í I.
flokki 7 og í II. flokki 10. Eftir
fjórar umferðir er Lárus John-
sen hæstur með 4 vinninga, en
hann er gestur mótsins. Þá er
Halldór Olafsson með 3 vinn-
inga, Freysteinn Þorbergsson
með 2V2 (hafði setið eina um-
ferð yfir), Jón Þór og Ólafur
Kristjánsson með 2V2 hvor.
Skákstjórar eru Haraldur
Bogason og Haraldur Ólafs-
son.
Geía 100 krónur af mjöSfunnu
Vatnsskortur tilfiniianlegur
Vopnafirði, 13. febr. Enn hald-
ast stillurnar og veðurblíðan,
sem að undanförnu, en það er
mjög óvenjulegt á þessum tíma
árs, og einkum það að ekki hef-
ur komið stormur svo nokkru
nemi síðan fyrir jól og þá að-
eins í tvo daga.
Jörð hefur verið sumarauð,
og hefur það komið sér vel fyr-
ir heylitla bændur. En fyrir
viku síðan gerði nokkurn snjó,
sem ekki varð þó til trafala
fyrir samgöngur í sveitinni, en
til heiða kom nokkur snjór og
mun nú ófært héðan landleið-
ina, nema þá helzt norður
strandir. Þcssar stillur hafa gert
það að verkum, að bændur hafa
getað sparað mikil hey og sum-
ir raunar aðeins notað beitina
og gefið með fóðurbæti, einkum
síldarmjöl.
Síldarverksmiðjan hér hefur
sýnt nokkra viðleitni til að
hjálpa bændum, með því að
gefa 100 kr. af hverri tunnu
mjöls, en auk þess veita gjald-
frest á afganginum vaxtalaust
fram í apríl. Þá hefur Kaupfé-
lagið veitt 10% afslátt á öllum
aðfluttum fóðurbæti. Öll þessi
hjálp við bændur hefur verið
árangursrík, og er útlitið með
búfjárhöld góð.
Nokkuð hefur borið á vatns-
skorti hér, og er ástandið ekki
sem bezt hér í þorpinu. Lokað
er fyrir vatnið að kvöldinu til
en opnað afur að morgni. Þó
safnast ekki nægilegt vatn fyrir
yfir nóttina, og eru sum húsin,
einkum þau, sem hátt standa,
vatnslaus síðari hluta dags. Þá
er einnig vatnsskortur á sum-
um bæjum í sveitinni. Þrjár
heimilisrafstöðvar hafa verið
óstarfhæfar síðan um áramót.
Til marks um, hve samgöngur
hafa verið óvenju góðar, má
geta þess, að laugardaginn 2.
febrúar fór um 70 manna hópur
héðan á bílum til Þórshafnar til
að horfa á sjónleikinn „Maður
og kona“, sem þar var sýndur,
og stóð fólk úr Þistilfirði fyrir
sýningunni, sem tókst í alla
staði vel. Fólk skemmti sér hið
bezta í ferðinni og kom heim
órla næsta morgun eftir ferð
sem á sumardegi. Sj.
OG LITLU BÖRNIN. .. .
GRÆNHÖFÐINN, þ. e. Alþýðu
maðurinn, sem svo er nefndur
síðan hann tók sér lit vorsins í
höfuðbúnað, hefur tekið upp
nýjan þátt, sem vei;ða mun vin-
Sæll, en það er kýnnirig á nýj-
um bæjarbúum. En ritstj blaðs-
ins hefur betri aðstöðu en ritstj.
annarra bæjarblaða til að fylgj-
ast með tilkomu hinna litlu borg
ara, þar sem tilkynna verður
Almannatryggingunum hvern
nýjan þjóðfélagsþegn, ef for-
eldramir eiga að fá eitthvað
„út á hann“. Þar slær hann öll-
um hinum við.
HÚS STELUR AF HÚSI.
„. .. . Á sama tíma hafa hús-
in grotnað niður og jafnvel
stolið jámi af húsþökum .... “
(Dagur 13. febrúar).
VEIKLEIKI SPILLINGAR-
INNAR.
Við spyrjum sjálf okk-
ur og aðra, hver sé veikasti
hlekkurinn í spilltu samkomu-
haldi . . . .“ (Dagur 13. febrúar)
Magnús Ingölfsson vann slór-
hrlðarmótið síðasll. sunnudag
STÓRHRÍÐARMÓT Akureyrar
í svigi fór fram í Hlíðarfjalli við
Strompinn sl. sunnud. 10. þ. m.
Keppt var í A, B, og C flokki
svo og drengjaflokkum 13—15
ára og 12 ára og yngri. Veður
var hið ákjósanlegasta og fór
keppnin vel fram. Keppendur
voru alls 34. Skíðaráð Akureyr-
ar sá um mótið.
Margt manna var í fjallinu, en
söknuðu þess að geta ekki feng-
ið kaffisopa í skíðaskálanum.
Ástæðan fyrir því er sú að nú
er verið að vinna að innréttingu
eldhúss skálans ásamt fleiru og
verður því verki vart lokið fyrr
en eftir einn til tvo mánuði. Þó
mun reynt að koma upp bráða-
birgða aðstöðu til þess að veit-
ingasala geti farið fram.
Úrslit Stórhríðarmótsins:
A flokkur. sek.
1. Magnús Ingólfsson KA 86,7
2. Guðm. Tuliníus KA 90,7
3. Ottó Tuliníus KA 91,8
B flokkur.
1. Viðar Garoarsson KA 104,1
Keppendur voru samtals 6 í
B flokki, en aðeins einn lauk
keppni.
C flokkur.
1. Sigurður Jakobsson KA 89,1
Drengir 13-—15 ára.
1. Heiðar Jóhannsson Þór 49,9
Drengir 12 ára og yngri.
1 Árni Óðinsson KA 41,2
Braut A flokks var 250 m
löng, 130 m fallhæð og hlið 40.
Braut B flokks var 230 m
löng, 120 m fallhæð og hlið 38.
Braut C flokks var 200 m
löng, 110 m fallhæð og hlið
34.
FARÞEGAFLUTNINGAR Flug
félags íslands sl. ár gengu mjög
vel. Fluttir voru alls 104.043
farþegar á árinu og er það lang
hæsta farþegatala á einu ári í
sögu félagsins. Árið áður var
farþegafjöldinn 77.894 og er
aukningin því 33,6%.
Mest varð aukningin í far-
þegaflugi innanlands, 40,7 af
hundraði. Fluttir voru 68.091
farþegi á móti 48.382 árið áður.
Vafalaust munu sumarfargjöld,
sem sett voru í fyrsta sinn sl.
sumar, eiga sinn þátt í þessari
miklu aukningu, svo og aukinn
flugvélakostur. Þess ber að geta,
að sumarið 1961 ló innanlands-
flug niðri í einn mánuð vegna
verkfalla.
Millilandaflug félagsins jókst
einnig álitlega á sl. ári. Fluttir
voru 27.952 farþegar í áætlun-
arflugi milli landa, en 24.520 ár-
ið áður. Aukning er 14 af hundr
aði.
Farþegar í leiguflugi voru á
sl. ári 8000 en 4992 árið 1961.
Aukning 60,3%.
ÁFENGISSALAN
1. október til 31. desember 1962
HEILD ARSALA:
Selt í og frá Reykjavík .
Selt í og frá Akureyri ,
Selt í og frá ísafirði ...
Selt í og frá Siglufirði .
Selt í og frá Seyðisfirði .
Samtals kr. 67.137.926,0»
kr. 55.498.385,00
kr. 6.401.829,00
kr. 2.130.189,00
kr. 1.440.471,00
kr. 1.667.052,00
Á sama tíma í fyrra var salan eins og hér segir:
Selt í og frá Reykjavík ........................... kr. 48.104.239,00
Selt í og frá Akureyri ............................ kr. 4.665.139,00
Selt í og frá ísafirði ............................. kr. 1.917.072,00
Selt í og frá Siglufirði ........................... kr. 1.345.449,00
Seit í og frá Seyðisfirði........................... kr. 1.234.414,00
Samtals kr. 57.226.313,00
Heildarsalan varð sl. þrjú ár:
Árið 1962 kr. 235.838.750,00
Árið 1961 kr. 199.385.716,00
Árið 1960 kr. 187.752.315,00
Áfengissalan 1962 varð því
kr. 36.453.034,00 hærri en 1961,
eða 18,4%.
Það skal tekið fram, að 1. júlí
1962 varð allmikil hækkun á
ófengum drykkjum.
Áfengisvarnarráð.
(Heimild: Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins).
ÍSLENDINGUR
L
I