Íslendingur - Ísafold - 30.05.1970, Side 1
Vinnum að sigri Sjálfstæðisflokksins x-D
íslmtimur-isafntd
29. tölublað. Laugardagur 30. maí 1970. 55. og 95. árgangur.
HJÓLBÖRUTÍMABILINU ER LOKIÐ
SÓKIMARHUGLR OG BJARTSÝIMI
einkenndu kjósendafund Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Sjálfstæðisfélögin á Akur-
eyi'i boðuðu til almenns kjós-
endafundar í Sjálfstæðishús-
inu sl. þriðjudagskvöld. Níu
frambjóðendur flokksins
héldu ræður, og var þeim á-
kaft fagnað af fundargestum,
sem voru fjölmargir. —
Maríus Helgason, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna, setti fundinn og bauð
viðstadda velkomna. Hann til-
nefndi Sigurð Ringsted sem
fundarstjóra og Þorstein Frið-
riksson fundarritara.
Fyrstur tók til máls Jón G.
Sólnes. — Hann þakkaði það
mikla traust, sem honum var
sýnt í prófkjöri því, sem fram
fór í vetur. Hann kvaðst hafa
verið búinn að taka ákvörðun
um að vera ekki áfram í ör-
ugu sæti á listanum, en úrslit
prófkjörsins hefði breytt þeirri
ákvörðun. Hann sagði m.a.,
að það þyrfti að leggja höfuð-
áherzlu á tryggt og öruggt at-
hafnalíf í bænum, og tryggja
fjárhag bæjarins sem bezt. Þá
lýsti Jón G. Sólnes því yfir, að
ef hann sæti í næstu bæjar-
stjórn, þá myndi hann berjast
fyrir því af alefli, að bærinn
yki framlag sitt til varanlegrar
gatnagerðar, þannig að það
yrði mun meira en hingað til.
Næstur tók til máls Sigurð-
ur Hannesson. — Hann ræddi
aðallega um útboð á bygginga
framkvæmdum bæjarins, efl-
ingu iðnaðarins og könnun á
stóriðju. Hann minnti á, að á
Akureyri eru nú starfandi
mörg byggingarfyrirtæki, sem
hafa áhuga og getu til að gera
bindandi tilboð í byggingar-
framkvæmdir, og ef þessi leið
væri farin, myndi skapast sam
keppni milli verktaka, sem
reynzt gæti hagkvæmt fyrir
bæjarfélagið. — Reykjavíkur-
borg hefði gert mikið at því
að leita tilboða í framkvæmd-
ir á vegum borgarinnar, og
teldi sig hafa hagnast á því. —
Hann ræddi möguleika á því
að bjóða út stórar byggingar-
framkvæmdir, sem stanaa
mundu yfir í mörg ár, eins og
t. d. væntanleg sjúkrahússbygg
ing mundi gera, og taldi mögu
leika á því að bjóða verkið út
i áföngum, en æskilegra væri
að geta boðið slík verk út í
einu lagi, því þá fengist endan
legur kostnaður við verkið áð
ur en framkvæmdir hæfust. —
Þá ræddi Sigurður einnig um
nauðsyn þess að fjölga atvinnu
fyrirtækjum í bænum, og taldi
stóriðju í nágrenni bæjarins
mikilvægt mál fyrir atvinnu-
lífið á Akureyri.
Erna Jakobsdóttir ræddi
einkum um baráttumál kvenna
og benti réttilega á, að ekki
væri lengur unnt að loka aug-
unurn fyrir því, að það væri
bráðnauðsynlegt að koma upp
dagheimili og vöggustofu á Ak
ureyri hið fyrsta. Þá ræddi
hún einnig um þá staðreynd,
að konan situr ekki við sama
borð og karlar hvað atvinnu-
möguleika snertir, nema í orði
en ekki á borði.
Kuútur Otterstedt ræddi um
raforkumál m. a. — Hann
minnti á, að Akureyrarbær
hefði á sínum tíma haft frum-
kvæði um virkjun Laxár, og
Akureyri mætti aldrei sleppa
frumkvæði sínu í virkjunar-
og raforkumálum. Hann gat
þess einnig, að raforkuverðið
frá Laxárvirkjun væri 10%
lægra en verð frá Landsvirkj-
un. Þá talaði hann iennig um
nauðsyn á heildarskipulagi fyr
ir Akureyri, málefni íþrótta-
félaganna o. fl.
Árni Árnason skýrði frá
undirskrift Norðurverks hf.
og Laxárvirkjunarstjórnar við
víkjandi byggingarframkvæmd
um við virkjunina. Hann kvað
Norðurverk eitt af fáum hluta
félögum, sem mætti með
sanni nefna almenningshluta-
félag, en hluthafar eru yfir
200 talsins. — Þá ræddi hann
um þörf á aukinni menntun
verzlunarfólks í bænum, for-
ystuhlutverk Akureyrar fyrir
Norðurland á sviði samgangna
og þjónustu, nauðsynlegar úr-
bætur í byggingarmálum o. fl.
Stefán Stefánsson ræddi m.
a. um nýja stefnu í byggðaþró
un á Norðurlandi, hina miklu
þátttöku í prófkjöri Sjálfstæð-
ismanna og einnig hvatti hann
ungt fólk til að fylgjast vel
með í þjóðmálum.
Úrdráttur úr ræðum Gísla
Jónssonar, Ingibjargar Magn-
úsdóttur og Lárusar Jónsson-
ar er birtur hér í blaðinu.
Að lokum sleit Sigurður ''
Ringsted fundi með nokkrum
hvatningarorðum. Var mikill
sóknarhugur í fundargestum
og lofar það góðu um úrslit
kosninganna.
IMæsta blað kemur út föstudaginn 29. maí