Straumar - 01.01.1927, Blaðsíða 9

Straumar - 01.01.1927, Blaðsíða 9
STRAUMAR MÁNAÐARRIT UM KRISTINDÓM OG TRÚMÁL 1. árg. Reykjavik, i janúar 1927 1. tbl. Ávarp. Eins og vér gátum um í boðsbréfinu að riti þessu, sem nú kemur í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir, þá er það framkomið vegna þeirrar nauðsynjar, sem vér nú teljum á slíku málgagni með þjóð vorri. Verður reynslan að skera úr um það, að hve miklu leyti þessi skoðun vor er á réttum rökum bygð, og skulum vér aðeins taka það fram, að vér munum hlíta þeim dómi, hver sem hann verður, með fullu jafnaðargeði. Sýni undirtektir þjóðar- innar það, að eigi sé tímabært að gefa hér út frjálslynt rit um trúmál, þá er vitanlega ekkert við því að segja. En bregðist alþýða manna vel við, þá vonum, vér, að það geti orðið Guðs kristni meðal landa vorra til eflingar að einhverju leyti. Eigi hirðum vér um að koma hér fram með neina fastmótaða stefnuskrá og má vera, að ýmsum flnnist það bera vott um trúleysi vort og festuleysi. En vér trúum því, að sá muni flnna sannleikann, sem leitar hans, en leitin að sannleikanum og leitin að Guði er að vorum d,ómi eitt og hið sama. Þannig viljum vér leita Guðs ríkis og hans réttlætis. Væntum vér liðs og afla margra annara, sem öðlast hafa margvíslega og ólika lífsreynzlu. Og mætti rit vort, þótt í litlu væri, stuðla að meiri skilningi og betra árangri í leitinni, teldum vér tilgangi þess náð. En hitt er mikill ábyrgðarhluti, bæði fyrir Guði og sinni eigin sál, að ein- angra sig og útiloka frá andlegum straumum nútímans. Með þessum formála sendum vér yður, sem erindi vort sjá eða heyra, hugheilar nýjárskveðjur. títg.

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.