Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 125
BÚFRÆÐINGURINN
123
yestur í Ólafsdal í því skyni að fá Torfa Bjarnason til þess að flytja
skóla sinn frá Ólafsdal suður til Hvanneyrar. Af því varð þó ekki. Loks
arið 1885 keypti Borgarfjarðarsýsla eignina, og í febrúar 1889 gekk
Suðuramtið inn í kaupin og ákvað, að stofnaður skyldi búnaðarskóli
a staðnum. Fyrsta auglýsingin um skólann var birt í ísafold 20. marz
1889, og um krossmessu um vorið var starfsemin hafin. Skólastjóri varð
Sveinn Sveinsson búfræðingur. Aðeins einn nemandi var í skólanum
sumarið 1889, Hjörtur Hansson, og er lians getið á öðrum stað í
þessu riti.
Björn Bjarnarson andaðist að heimili sínu, Grafarholti í Mosfells-
sveit, í marz 1951.
Björn Bjarnarson er því órjúfanlega tengdur sögu Bændaskólans á
Hvanneyri. Og ef til vill á enginn einn maður jafnstóran þátt í því og
hann, að búnaðarskóli var settur á stofn fyrir Suðuramtið og hin
glæsilega jörð, Hvanneyri, var valin sem skólasetur.
Hér verður ekki unnt að rekja sögu Bændaskólans á Hvanneyri,
enda hefur það verið gert í sögu skólans, er út kom á fimmtugsafmæli
hans 1939. Þó skal á það minnzt, að vorið 1939 höfðu komið í skólann
alls 800 nemendur, þar af útskrifazt með búfræðiprófi 582. Af þessum
800 nemendum voru 74 dánir, en um 5 var ekki hægt að afla vitneskju.
Frá aðaljundi Hvanneyrings 1949.