Ármann - 01.04.1959, Page 18

Ármann - 01.04.1959, Page 18
KJARTAN BERGMANN GUÐJÓNSSON: Frumherjamír Fyrsta íþróttafélagið, sem iðkaði glímu í Reykjavík, var Glímufélagið, sem stofnað var n. marz 1873. Formað- ur og aðalhvatamaður að stofnun þess félags var Sverrir Runólfsson, stein- höggvari frá Maríubakka í Skaftafells- sýslu. Allt að áttatíu menn gengu þá þeg- ar í Glímufélagið eða ef til vill fleiri. Sverrir fékk hjá bænum stóran blett á Melunum útmældan undir glímuvöll. Sverrir gerði þarna stóran grasflöt til að glíma á. Var síðan í mörg ár glímt á þessum velli. Það má því segja, að Sverrir sé fað- ir íþróttavallarins á Melunum. Glímufélag þetta mun hafa verið við lýði fram undir 1880. Ég get hér þessarar félagsstofnunar, þar sem ég tel, að stofnun Glímufé- lagsins hafi verið undanfari að stofn- un Glímufélagsins Ármanns. Hér á eftir fylgja stuttir þættir um tvo aðalstofnendur Ármanns. Pétur Jónsson Pétur Jónsson blikksmiður var ann- ar aðalstofnandi Glímufélagsins Ár- manns. Hann lærði blikksmíði á yngri ár- um, mátti hann kallast brautryðjandi á því sviði, og gerði hann blikksmíð- ina að ævistarfi sínu. Svo mátti heita, að um eitt skeið væri Pétur nálega hinn eini maður sunnanlands, er áhuga hafði á glímu- íþróttinni, og varð hann til þess að endurvekja hana hér syðra og stofna glímuflokk með stúkubróður sínum í stúkunni Einingunni nr. 14, Helga Hjálmarssyni, síðar presti að Grenjað- arstað. Síðar unnu þeir félagar að stofnun sérstaks glímufélags, og var Glímufélagið Ármann stofnað 1888 að þeirra tilhlutan. Við nafngift félagsins mun Pétur hafa haft í huga góðkunn- ingja sinn frá æskustöðvunum, Ár- mannsfell. Pétur var ágætur glímumaður og kunnáttumaður í glímunni. Orslita- bragð hans mun hafa verið klofbragð, en öll önnur brögð kunni hann ágæt- lega vel og einnig varnir. Áhugi hans og ást á glímunni var sérstök, enda vann hann mikið og fórnfúst starf til eflingar glímuíþróttinni. Pétur var glímukennari Glímufélagsins Ármanns um eitt skeið, og voru glímuæfingar um aldamótin í svokölluðum Fjala- ketti, sem var samkomuhús við Bröttu- götu í Reykjavík (nú Aðalstræti 8). Pétur blikksmiður var fæddur í Skógarkoti í Þingvallasveit 2. ágúst 1856, sonur Jóns hreppstjóra í Skógar- koti Kristjánssonar hreppstjóra í Skóg- arkoti Magnússonar. Móðir Péturs var miðkona Jóns í Skógarkoti, Kristín Eyvindsdóttir frá Syðri-Brú í Gríms- nesi Hjartarsonar í Hvammi í Olfusi. Pétur dó í Reykjavík 25. apríl 1908. Helgi H)álmarsson Á söguspjöldum glímunnar mun nafn Helga Hjálmarssonar lengi geym- ast. Hann var aðalstofnandi Glímufé- lagsins Ármanns 1888, ásamt Pétri Jónssyni blikksmið. Æfingar hófust í Templarahúsinu. Pétur Jónsson Klæddust menn þá sterkum buxum úr íslenzku vaðmáli og tóku hver annan glímutökum, svokölluðum buxnatök- um. Glímubelti voru þá ekki til hér á landi og þekktust ekki. Helgi Hjálmarsson var frá Vogum í Mývatnssveit og hcfur því frá barn- æsku fylgzt með glímunni, sem mikið var æfð meðal Mývetninga, sem áttu marga góða glímumenn á þessum ár- um. Helgi var hinn áhugasamasti íþróttamaður og mun þegar á bernsku- skeiði hafa náð óvenjulega góðum árangri í glímunni, og einnig var hann snjall á skautum, en eftir að hann kom í Latínuskólann, æfði hann glímuna að staðaldri cg þótti bcra þar af að kunn- áttu og glímuleikni. Árið 1889 var fyrsta kappglíma Ár- manns háð, og tóku flestir félagsmenn- irnir þátt í henni. Sem vonlegt var, þótti glímuhæfni manna misjöfn, en heildin gaf góðar vonir um glæsilega glímumannasveit. í þessari fyrstu Ár- mannsglímu sigraði Helgi Hjálmars- son. Árið 1890 sigraði Helgi einnig í Ár- mannsglímunni, en þessi glímukeppni féll svo niður þar til 1897, en á þcim ár- um voru glímdar opinberar bænda- glímur og sýningaglímur. 18 ÁRMANN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Ármann

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.