Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 47
MORGUNN
175
fundu og sönnuðu, að jörðin og aðrar reikistjörnur
gengju í kringum sólina, þegar Franklin fann eldinga-
varann og í rauninni sama um sérhverja nýja þekking,
sem mennirnir hafa fengið. Það voru að eins ný þekk-
ingar atriði sem mennirnir öðluðust og orðin er óaftur-
kallanleg eign þeirra. Á móti mörgum, að ég ekki segi
flestum, þessum þekkingaratriðum hefur í fyrstu verið
barizt af vísindum eða trúarbrögðum eða hvorutveggja
þangað til ekki tjáði lengur móti að mæla.
Nákvæmlega sama er að segja um spíritismann. Hann
er engin stefna. Hann er nýtt, dásamlegt þekkingarat-
riði, sem mannkynið hefur öðlazt og aldrei verður fram-
ar aftur tekið. Það er eins með hann, að það hefur verið
barizt á móti honum og er enn verið að berjast á móti
honum eins og svo mörgum öðrum. En auðvitað hlýtur
svo að fara um hann, eins og önnur þekkingaratriði, að
ekki tjáir lengur móti að mæla; þetta er víst og óaftur-
kallanlegt.
Þess vegna var það, að ég tregðaðist við á síðasta
fundi okkar, að fallast alveg á að spíritistar hafi það
sameiginlegt með guðspekingum að vera að leita, þó að
ég játi, að það má til sanns vegar færast að því leyti,
að í sambandi við þekkinguna, sem fengin er um það, að
iífið heldur áfram, og fyrirbrigðin, sem leitt hafa til
þessarar þekkingar, og allt ástandið í framhaldslífinu,
— er enn margt dularfullt og á sjálfsagt eftir að verða
rannsakað og sú leit enn eftir að bera árangur, því að
allt þetta mál er að þessu leyti enn á byrjunarstigi og
ekki fyrirsjáanlegt, hve langt vér munum komast. Það
er á sinn hátt eins og fyrsta þekkingin um, að til sé það
afl, sem nefnt er rafmagn, hefur leitt til þess geysi mikla
árangurs, sem oss er kunnugt og meðal annars ljósin
hér í salnum bera vott um. Mönnunum eiga sjálfsagt enn
eftir að renna upp mörg ljós í sálarrannsóknunum og
leitin að þeim ljósum mun ekki verða látin niður falla.
En sjálfa þekkinguna, að til sé framhalds líf, vil ég