Morgunn - 01.12.1940, Blaðsíða 38
1G4
MORGUNN
framliðnir menn raunverulega að verki; ekki sízt þegar
um er að ræða svipi manna, sem fyrir mörgum hundr-
uðum ára lifðu á jörðinni. Er hægt að trúa því — hafa
menn spurt — að fólk, sem öldum saman hefur lifað í
andlega heiminum, sé enn að koma til jarðarinnax,
klæðast þar sínu aldagamla gerfi, og vinna þar algerlega
tilgangslaust og skynsemdarlaust sín gömlu jarðlífs-
störf? og það ekki aðeins einu sinni, eins og til þess aö
rifja upp gamlar minningar, heldur oft og margsinnis.
Ég held að flestir heilbrigðir menn mundu í fullri al-
vöru segja: Þetta mundi ég aldrei gera!
Mig langar til að láta yður heyra eina af þess konar
„reimleikasögum“, eftir mjög ákjósanlegum heimildum:
'fvær enskar konur, sem notuðu rithöfundanöfnin Miss
Morrison og Miss Lamont, gáfu út litla en mjög merki-
lega bók, sem þær nefndu An Adventure — eða Æfin-
týri — um reynslu sína. í bókinni segir frá því, er þær
voru saman á göngu um hallargarðana í Versailles, þar
sem hallir Frakkakonunganna á 17. og 18. öld standa
enn, að þær urðu skyndilega gripnar undarlegri tilfinning
og á sama augnabliki breyttist umhverfi þeirra, þær sáu
garðyrkjumenn önnum kafna við vinnu sína, í einkenni-
legum klæðnaði og með verkfæri í höndum, sem þær
höfðu aldrei séð, en fötin minntu þær á klæðaburð
verkamanna á dögum frönsku stjórnarbyltingarinnar.
Þær héldu áfram að sumarhúsinu Petit Trianon og á
bekk í garðinum sáu þær sitja konu við að teikna, en
konan líktist mjög myndum sem þær höfðu séð af Maríu
Antoinette drottningu. Út um dyrnar kom skyndilega
þjónn, hann skellti hurðinni aftur, gekk að konunni og
hvíslaði einhverju í eyra henni.
Daginn eftir fundu þær í bókasafninu mikla í París lit-
aða mynd af Maríu Antoinette drotningu, þar sem hún
var nákvæmlega eins klædd og með nákvæmlega sömu
litum og þær höfðu séð konuna bera, sem sat við Trianon
í hallargarðinum við Versailles. Þær fundu teikningar