Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 11

Morgunn - 01.12.1990, Síða 11
MORGUNN Að hafa hugrekki til að syrgja loks þegar mér tókst að segj a bless, þá ger ðist ekker t. Ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum og sagði Jim frá því. Hans við- brögð voru þessi orð: Hvernig væri að segja: „Bless David, halló veröld?" Svo ég sagði þessi orð og leit á hina þátttak- endurna sem sátu í hring í kringum mig á þessu námskeiði og þeir voru grátandi. Ég varð mjög snortin yfir því að þetta fólk skyldi hafa gengið í gegnum þessa reynslu með mér. Það urðu í raun einhver umskipti hið innra með mér. Á þeirri stundu sleppti ég hendinni af David og varð hluti af veröldinni. Það hafði ég ekki verið í fjórtán ár! SR: Þessi reynsla hefnr ekki eingöngn verið þér hjálpleg til heilunar heldur leiddi hún þig líka til sorgarráðgjafar, var það ekki? JT: Jú, hún gerði það. Þegar ég leit til baka, þá sá ég þessi fjórtán sorgarár mín sem harmleik. Ég sá að fólk þarfnaðist þess raunverulega að tala um og hafa einhverja ástæðu til þess að losa sig við tilfinningu missisins og oft eru ekki næg tækifæri fyrir það til þess í þessu þjóðfélagi. Fólki getur fundist það mjög einangrað þegar það er að syrgja og ég vissi að eitthvað væri hægt að gera þeim til aðstoðar varð- andi sársauka þess. SR: Þú hefur beint athygliþinniað sálfræðilegum þætti reynslu þinnar. Voru einhverjir dulrænir þættir tengdir henni? JT: Eftir að ég hafði komist yfir sorg mína vegna láts bróður míns með hjálp Jim Simkin 1971, þá flutti ég tll Kaliforníu og hitti í fyrsta sinn fólk sem trúði á líf eftir dauðann. Ég hafði ekki verið alin upp við þá trú en í Kaliforníu virtist hún útbreidd. Ég varð forvitin en ekki sannfærð. En þá fór ég á ráðstefnu í San Frandsco um dauða og andlát. Elisabeth Kubler-Ross sagði það við 1000 áheyrendur að hún væri sannfærð um líf eftir dauðann. Á þeirri stundu skildi ég greinilega þýðingu fjölmargra drauma sem ég hafði upplif- að varðandi bróður minn. Eg sá þá nú í algjörlega nýju ljósi. 9

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.