Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 90

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 90
90 HVERNIG RÆTT IST SPÁ IN? hér sýndi sig. Hætti þjálfunin áður en nemandinn hefur leiknina á hraðbergi eru líkur á að honum fari aftur í lestrinum og erfitt reynist fyrir hann að beita nýrri kunnáttu á önnur og framandi viðfangsefni . Það má lesa af gögnunum sem hér eru kynnt. Eins og niðurstöðurnar sýna fylgdu þær breytingar sem urðu á lestarafköstunum DI–PT kennslunni. Afköst nemandans jukust ekki jafnt og þétt eftir því sem tíminn leið og þroski hans væntanlega óx, heldur sveifluðust þau í samræmi við kennsluna. Einkunnir úr skólanum endurspegla stýriáhrif DI–PT kennslunnar enn frekar. Breyt- ingarnar voru örar það tímabil sem kennslan varði, en leshraðinn hefur verið nær óbreyttur nú síðasta árið eftir að DI–PT kennslunni lauk. Þegar lestrarkennslan fór fram var höfundi ókunnugt um rannsóknir sem sýna að börn virðast læra að skipta orðum í atkvæði áður en þau læra að greina stök hljóð (Freyja Birgisdóttir, 2004). Leikni nemandans í atkvæðaskiptingu var þ.a.l. ekki könn- uð í upphafi. Skipting orða í atkvæði var hins vegar æfð nokkrum sinnum (heyra orð/ klappa takt, sjá og segja orð/klappa takt) þegar að henni kom í kennslunni og nem- andinn bjó sig undir að lesa tvíkvæðu orðin. Þá gekk atkvæðaskiptingin vel og var villulaus. Þar af leiðir verður ekki hægt að svara því hér hvort nemandinn var þegar fær um að skipta orðum í atkvæði áður en kennslan hófst. Miðað við hvað hljóðin lærðust hratt og vandræðalaust er hins vegar ástæða til að spyrja hvort verið geti að hljóðgreiningin hafi þegar verið heyrnrænt til staðar og vandinn hafi öðru fremur ver- ið mállegur. Með öðrum orðum að þjálfunin í umskráningunni hafi frekar verið eins konar framköllun og þjálfun á hinni merkjanlegu færni – nemandinn hafi þegar heyrt rétt hljóð þótt hann hafi hvorki sagt þau öll né sagt þau rétt, svipað og börn sem eru að byrja að tala (sjá t.d. Indriði Gíslason og Höskuldur Þráinsson, 1993:62). Þessu til viðbótar skal einnig minnt á hversu ólík hljóðaaðferð beinna fyrirmæla er þeirri leið að kenna barni að þekkja útlit orðanna í stað þess að kveða að. Nú efast höf- undur í sjálfu sér ekki um að nemendur séu almennt fljótari að læra merkingu af útliti heilla orða eins og „frímínútur“ eða „leikfimidót“, bæði heyrnrænt og sjónrænt, en aðferðina við að kveða að hverju málhljóði í þeim fyrst. Að auki geta margar ástæður, eins og kennsla nýbúa, verið fyrir því að óhentugt sé að bíða algjörlega með að kenna nemandanum að þekkja hagnýt orð af þessu tagi þar til hann hefur lært að lesa. Hins vegar skal það áréttað að þegar nemandi lærir að kveða að málhljóðum þarf hann ekki að muna utan að ótæpilegan og sívaxandi fjölda orða. Þess í stað lærir hann tiltekna reglu „dulmálslykils“ til afkóðunar. Færni nemandans er þ.a.l. ekki háð því hvort hann hafi áður séð og muni þau orð sem á vegi hans verða í lestrinum. Sá sem kann afkóð- unarregluna og getur beitt henni reiprennandi, hvernig svo sem bókstafirnir raðast, er tæknilega læs og „þekkir“ á vissan hátt nýja orðið um leið og hann sér það. Síðastliðinn vetur (2006–2007) las nemandinn bækur sér til ánægju. Einnig skrifaði hann sögur með efniviði og í samhengi. Hann talaði skýrt og skiljanlega með eðlileg- um raddstyrk, þótt hann veldi sér viðmælendur og setningamyndun væri ekki alltaf rétt. Nemandinn spurði um merkingu orða og sýndi dæmi um góðan lesskilning með því að vísa til efnis bókanna. Erfitt er að ímynda sér að þessi lýsing eigi við sama dreng og höfundur kynntist í janúar 2005. Ekki verður hjá því komist að minna á mikilvægi þess að markið sé sett hátt fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.