Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 176

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 176
176 HÁSKÓLAST IG IÐ Í L JÓS I HNATTVÆÐINGAR umburðarlyndi er gagnvart þeim sem skera sig úr, hvort sem það er vegna uppruna, tungumáls, fötlunar, kynhneigðar eða aldurs. Þetta kemur ekki síst fram í samvinnu og hópastarfi. Af því má álykta að til að jafna stöðu ólíkra nemendahópa við skól- ann þurfi að endurskipuleggja samvinnu og hópastarf í því skyni að koma í veg fyrir útilokun og einangrun (Dunn og Carroll, 2005; McLean og Ransom, 2005). Mikilvæg- ur þáttur náms í KHÍ er að öðlast færni í samskiptum. Með því að vinna alltaf með sömu einstaklingunum fara nemendur á mis við mikilvæga þjálfun í samskiptafærni. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur einnig fram að mannauð og hæfileika í svo fjölbreyttum nemendahóp mætti nýta mun betur (Ryan og Hellmundt, 2005). Aðrir nemendur virðast ekki hafa áhuga á því sem erlendu nemendurnir hafa til málanna að leggja, né á fyrri reynslu þeirra. Hin fjölmörgu tungumál sem nemendurnir í rann- sókninni hafa á valdi sínu virðast lítils metin í nemenda- og kennarahópnum, og frek- ar virðist horft á veikleika nemendanna en styrkleika. Mannauðurinn sem felst í marg- víslegri og dýrmætri reynslu og þekkingu þessa fjölbreytta hóps virðist frekar gera þá utanveltu en að veita þeim sterka stöðu (Merryfield, 2001). Þessi staða er mjög lík því sem rannsóknir hafa sýnt að blasi við í leik-, grunn- og framhaldsskólum landsins, þ.e. að erlendir nemendur eru gjarnan flokkaðir á grundvelli skorts frekar en styrkleika og lenda því strax í upphafi í jaðarstöðu í skólakerfinu, sem síðan reynist erfitt að kom- ast úr (Hanna Ragnarsdóttir, 2007). Í þessu samhengi er mikilvægt að skoða hvern- ig skólasamfélagið skipar fólki í hópa, flokkar það og setur á það merkimiða. Þessi flokkun hefur síðan áhrif á sjálfsmynd einstaklingsins. Í rannsókninni kemur hjá sum- um þátttakendum fram brotin sjálfsmynd, þar sem þeir upplifa sig utanveltu og van- metna sem einstaklinga (Ryan, 2005). Af þessu má álykta að þörf sé á eflingu, styðja þurfi erlenda nemendur í að koma auga á og viðurkenna eigin hæfileika, auk þess sem vinna þurfi að því að skapa skólamenningu sem lítur fjölbreytileikann jákvæðum augum. Taylor (2000) hefur einnig bent á að leggja þurfi áherslu á virka þátttöku allra nemenda innan háskólanna í mótun sameiginlegrar stofnanamenningar. Með öðrum orðum, aðgengi á jafnréttisgrundvelli er mikilvægt, en ekki nægilegt. Gæta þarf þess að taka nemendur ekki inn á röngum forsendum og skilaboð fyrir og í upphafi náms þurfa að vera skýr (Ryan, 2005). Nemendur þurfa að vita hvaða lágmarksskilyrði þarf til að geta stundað nám í íslenskum háskóla og hvaða tungumálakunnáttu er krafist. Eins og Nieto (1999) bendir á er mikilvægt að námskröfur til minnihlutahópa séu ekki minni en kröfur til annarra nemendahópa. Hún leggur áherslu á að mismunun felist í því að slaka á kröfum til tiltekinna nemendahópa. Af niðurstöðum rannsóknarinnar að dæma virðist ekki vera fullt samræmi milli þeirra skilyrða sem sett eru við inntöku og þess veruleika sem fram kemur í náminu. Nemendur bera vissulega ábyrgð, en það að þeir skuli upplifa ósigra í námi vegna rangra eða misvísandi skilaboða í upphafi ber ekki merki um gott upplýsingastreymi eða skipulag. Gundara (2000) bendir á mikilvægi þess að þróun náms í háskólum taki mið af breyttum samfélagsaðstæðum. Það á líka við um háskóla á Íslandi. Eins og Cordeiro o.fl. (2003) hafa bent á er einnig mikilvægt að háskólar skapi umræðu og leitist við að efla skilning nemenda á fjölbreytileika menningar, ólíkum tungumálum og mál- efnum sem tengjast hnattvæðingu. Að þeirra mati þurfa kennarar í kennaraháskólum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.