Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 19

Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 19
næturklúbb í París. Byas lék með frönsk. um hljómsveitarstjóra, að nafni Bernard I-Iilda, í eitt ár á Spáni og Portúgal. — Franskur hljómsveitarstjóri, að nafni Hubert Fol, er einn fremsti altc-saxafón- leikari í heimalandi sínu. Tenór-saxafón- leikari hljómsveitarinnar er einnig ein- hver bezti tenóristinn í Frakklandi. Ilann heitir Fohrenback. — Fremsti Be-bop leikari Svía heitir Putte Wickman. Hann leikur á klarinet og stjórnar lítilli hljóm- sveit. — Peanuts Holland, negrinn, sem lék í hljómsveit Charlie Barnets fyrir nokkrum árum hefur leikið í hljómsveit danska trombónleikarans Peter Rasmus- sen i Kaupmannahöfn í nokkra undan- farna mánuði. Peanuts kom til Evrópu með hljcmsveit Don Redman 1946 og hefur hann aðallega leikið í Svíþjóð síð- an. INNLENT 17. júní var all votviðrasamur í Reykjavík, eins og flestir muna, en þó fóru hátíðahöld þau fram, sem ákveðið hafði verið að halda. Fyrir dansinum á Lækjartorgi lék hljómsveit Aage Lor- ange, með þeim Einari B. Waage, Birni R. Einarssyni, Gunnari Ormslev og Axel Kristjánssyni sem viðbótarmönnum. Þessi hljómsveit lék nýju dansana, en það átti hljómsveit Björns R. einnig að gera, en úr því varð þó eigi í þetta sinn. Með Aage hljómsveitinni sungu þau Haukur Morthens, Sigrún Jóns- dóttir, ennfremur Öskubuskur, sem ekki hafa látið til sín heyra síðan í haust sem leið. Gömlu dansana átti að „iðka“ í Ingólfsstræti, en sökum illviðris var hljómsveitin flutt niður á Lækjartorg og lék hún þar til skiptis við hljóm- sveitina, sem var þar fyrir. Hljómsveit þessi var á nafni Baldurs Kristjánsson- ar, og voru þeir Ólafur Pétursson og Guðmundur Vilbergsson með harmon- ikur, Þórir Jónsson með fiðlu, og svo Baldur, Hallur, Trausti og Svavar í rhythma. Ennfremur lék Lúðrasevitin Svanur þarna nokkur danslög og tókst vel, sem von er, því að Karl Ó. Runólfs- son tónskáld og stjórnandi Svananna, cr gamall danshljóðfæraleikari. Leikur annars túbuleikari Svananna ekki full- sterkt ? HARMONIKUSÍÐAN Framhald af bls. 7. en hann var farinn að vekja mjög mikla eftirtekt fyrir hinn mjög snjalla leik sinn. Hann tók til að leika á dans- skemmtunum í Reykjavík og víðar og eins kom hann fram á mörgum skemmt- unum sem einleikari. Árið 1940 hélt hann sjálfstæða hljómleika í Reykjavík og ári síðar á Akureyri. 1944—45 hætti hann við takkaharmonikuna og tók að leika á píanóharmoniku, en hún var lítt þekkt hér á landi, þegar Bragi byrjaði. Hann var furðu fljótur að ná tökum á píanó- harmonikunni, sem út af fyrir sig er mikið þrekvirki, því takka- og píanóhar- monika eru tvö gjörólík hljóðfæri. 1947—48 fór hann til San Fransisco i Bandaríkjunum og var við nám í har. monikuleik hjá kennara, að nafni Cagn- azzo, sem er af ítölskum ættum, eins og flestir fremstu harmonikuleikarar Bandaríkjanna. Þegar Bragi kom heim eftir tiu mánaða nám hélt hann hljóm- leika í Reykjavík og nágranna kaupstöð- unum og fékk hinar beztu viðtökur og einstaklega góða dóma, fyrir hinn meist- aralega leik sinn. #aUU:í 19

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.