Jazz - 01.10.1947, Síða 5

Jazz - 01.10.1947, Síða 5
Hljómsveit Benny Goodman 1936. Fyrsta röð, talið frá vinstri: Pec Wee Irwin, trompet, Gene Krupa, tro'mmur, Benny Goodmafi, clari- nett, stjórnandi, Bill De Pew, alto sax, Murrey McEachern, trombón.. Miðröð, talið frá vinstri: Hymie Schertzer, alto sax., Red Ballard, trombón, Allan Reuss, guitar, Art Rollini, tenór sax. Aftasta- röð: Dick Clark, ten. sax., Jess Stacy, píanó, Nat Kazebier, trpt., Chris Griffin trpt., Harry Goodman, bassi. þá örbirgð og áhyggjur, er fátæktin lagði á okkur“. Það var draumur gamla Goodmans að gera syni sína að hljómlistamönnum og er Benny varð 10 ára fannst gamla manninum tími vera kominn til þess að láta strákana byrja að læra. Hann fékk hljóðfærin lánuð hjá einu af bænahúsum gyðinga þar í borg og jafnframt tók forstöðumaður bænahússins, Boguslawsky, að sér að kenna bræðrunum, fyrir 1,50 kr. fyrir kennslustund. En ekki er allur vandinn upp talinn en, bænahúsið átti aðeins til eitt hljóðfæri af hverri tegund, og varð það úr, að bræðurnir völdu sér hljóðfæri eftir stærð, Harry sá stærsti fékk túbu, Freddy sá næsti fékk trom- pet, en aumingja litli Benny varð að láta sér nægja clarinettið, en hvað um það, clari- nettið var forkunnarskrautlegt með alla takk- ana og Benny undi glaður við sitt. Boguslawsky var gamall maður, er hér er komið sögu og hann gat aðeins kennt Benny stuttan tíma, svo Benny fór til Franz Schoepp, gamals kennara, er hafði áður kennt við tónlistarháskólann í Chicago, og vár hjá honum í tvö ár, og er þá upptalinn allur sá lærdómur, er troðið hefur verið í söguhetju okkar, og verður það til þess, að við undr- umst enn meir tækni hans og gáfur. JAZZ 5

x

Jazz

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.