Jazz - 01.10.1947, Side 14

Jazz - 01.10.1947, Side 14
Be-Bop (framh. af bls. 10) Hefi ég því samið við Jón M. Arnason um að spila eftirtaldar plötur í jazzþætti Rikis- útvarpsins mjög bráðlega, og geta menn þá kynnt sér þennan nýja stíl og dæmt, hvernig þeim finnst hann. En það skal tekið fram, að því oftar sem maður hlustar á be-bop því skemmtilegra finnst manni það. Plöturnar eru: 1. „Things to come“, sem er spiluð af Dizzy Gillespie og hljómsveit hans. Víbrafónleikarinn, Milton Jackson, spil- ar á henni, en hann er eini víbrafónleikar- inn, sem hingað til hefur getað spilað be-bop svo vel sé. 2. „Donna Lee“, spiluð af Charlie Parker, hæfileikar hans koma vel fram á plötunni. Max Roach leikur með honum, en hann er án efa lang bezti beJbop trommarinn. 3. „Trumpet at tempo“, spiluð af Howard McGee, en hann er sá trompetleikarinn, sem næst gengur Gillespie í be-bop. Asamt honum leika Jimmy Bonn á píanó og Roy Porter á trommur og Dingbad á bassa. 4. „Up in Dodo’s Room“. A henni leika Howard Mc Gee, Roy Porter og Dingbad, ásamt þeim Teddy Edwards á tenórsaxófón, Arv Garrisson, guitar og Dodo Marmarosa, en hann er hvítur píanisti, sem mörgum er kunnur, og spilar hann langa sóló, sem er afburða góð. Hann er af mörgum talinn vera fremsti be-bop píanóleikarinn. 5. „Curbstone scuffle“, spiluð af þeim Sonny Bermann, trompet, Bill Harris, trom- bón, Flip Phillis, tenor-sax., Serge Charloff, bariton-sax., Ralph Burns, píanó, Chuck Wayne, guitar, Don Lamond, trommur og svo Artie Bernstein á bassa. Allir eru menn þsesir úr Woody Herman hljómsveitinni að undanteknum Artie, sem lengi var með Goodman. „Dizzy" Chnrlic Parker Fáum dögum eftir að plata þessi var gerð dó trompetleikarinn Sonny Berman, aðeins tvítugur að aldri. Fráfall hans er mikill skaði fyrir jazzinn, þar sem hann var sérstaklega góður sólóisti, sem sjá má á því, að hann lék fyrsta trompet í W. Herman hljómsveit- inni, og var þar með tekinn fram fyrir þá Neil Hefti og Pete Candoli, en eins og allir vita þá hafa þeir alltaf verið álitnir sérlega góðir. Fleiri be-bopista má nefna, svo sem trom- petleikarann Red Rodney, sem er aðal stjarn- an í Gene Krupa hljómsveitinni, tenór-saxó- fónleikarann Al'len Eager og svo danksa trombónistann Kai Winding, sem er í Stan Kenton hljómsveitinni. Ennfremur trommar- ann J. C. Herad og Specs Powell og að lok- um altóistann Sonny Stitt, sem tók sæti Charlie Parker i hljómsveit Gillespie, er hann hætti. Hvernig orðið Be-bop varð til og hvaða merkingu það hefur er ekki gott að segja, það er nokkurskonar táknorð yfir þennan nýja stíl, eins og t. d. að söngstíll sá, er Louis Armstrong kom með er ætíð nefndur „scat“. Svavar Gests. 14 JAZZ

x

Jazz

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.