Kristilegt stúdentablað - 01.12.1936, Blaðsíða 8

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1936, Blaðsíða 8
KKISTILEGT STÚDENTABLAÐ ^w Þá reynir séra Sang- að lokum að þvinga Guð. Hann fær þá trú, sem hann þarf •— og hann bið- ur enn einu sinni, meir en nokkru sinni áður. Hann, gjörir áhlaup á Guð. — Og ,hvað skeður? Kona hans stendur upp af sóttarsænginni og gengujr til hans. En -— hún fellur dauð í fang hans! Honum mistókst sem sé á úrslitastunidiinm. Eins og við getur verið að búast. Því það mistekst alltaf þegar mennirnir vilja þrengja sínum vilja fram gegn vilja Guðs. Því þá fer maður sem sé út fyrir ramma kristindémsins. Það er þá varla hægt að kalla það kristindóm lengur. Því þýðingarmesta bæn kristindómsins er: Veiði þinn vilji! Þessarar bænar hafði séra. Sa.ng ekki lært að biðja, enda þótt honum sé lýst sem miklum bænarmanni. Nú skulum vér hugfesta að meðferð Björnsons á kristindóminum í »Ofurefli« nær aðeins til einn- ar einustu hliðar hans — sem sé kraftaverkatrú,- arinnar. En það er nú að ráðast á »aukaatriði« kristindómsins. Því meir mistókst árás ’nans. Það er .hin frelsandi trú, sem er ljftaug krist- indómsins. Ef Björnson hefði getað ráðist á hana og sannað að hún fengi ekki staðizt ágjöf lífsins og d,auðans, þá mundi hann hafa veitt kristin- dóminum banahöggið. En á þessu sviði hefir hann sjálfa reynslusönn- un lífsins á móti sér. Hér mætir oss ótölulegur grúi vitna —- 1900 ára hetjusaga u,m trúarhetjur, sem gengu á báþð, sem gengu fram fyrir ijón, hetjur, sem þoldu allt nema það eitt, að missa trú sína. ★ Ibsen hefir í bók sinni »Brandur« náð betur tök- um á þessu sa.ma viðfangsefni. Hann snýr sér að siðgæðiskröfum kristindómnsins. Séra Brandur er maður, sem vill gjöra alvöru úr sidgæðiskröfum kristindómsins. En hann ofreynir sig einnig á því. Brandur berst með quantum satis mannsviljans. Og hann fer eins l,angt, eins og vilji mannsins nær, Hann kemst líka langt. En honum mistekst að lokum. — Hversvegna,? Jú, af því að quantum mannsviljans er ekki satis! Það er sannleikurinn. En svo heyrist að lokum undarlegt bergmál, í »Bran,di« eftir Ibsen, sem ef til vill sýr.ir að lbsen hafi séð lengra en Björnson —: »Hann er IJens caritatis«. Þegar vilji mannsins hefir erfiðað til ónýtis, þá nær Björnson ekki lengra; hann leggur árar í bát. En hjá Ibsen kemur þá rödd a>:) ofan, það er Guð kœrleikans, sem kemur. Ibsen getur ekki annað í hræðilegum vanmætti mannsins en — vonað á eitthvað meira en quantum mannviljans. En bæði Björnson og Ibsen eru sammála um, að mannviljinn ræður ekki við kröfur kristindómsins. Það er ómögulegt fyrir mennina að lifa cftir hinni háleitu fyrirmynd kristindómsins. Og ef iðeins er spurt um hvað vilji mannsins getur, þá svörum vér: Kristindómurinn er sannarlega ofurefli. Það er bara það sorglega, að Björnson og Ibsen (eins og svo margir aðrir) hafa ekki skilið sér- kenni kristindómsins. Hvorki kristindó’nurinn né kristnilífið er neitt mannaverk. Það er verk Guðs. ★ Kristindómurinn gerir háleitaúar siðgæðiskröf- ur allra trúarbragða.. Kröfuir hans eru að því l,eyti »ómannlega,r«. önnur trúarbrögð gera ekki meiri kröfur, en maðurinn, heíir mátt til að íullnægja. Þau gera. að vísu miklar kröfur (eins og t. d. Buddhismi og Confisianismi). En þær eru ekki óviðráðanlegar, Með góðum vilja og undiigefni er hægt að fullnægja þeim. Þetta er einmitt eitt at- riðið í þeim mikla mismun, sem er á kristindómin- um og öðrum trúarbiögðum: Kristindómu.rinn gjörir svo strangar kröfur, að maðurinn getur ekki lifað eftir þeim með viljakrafti sínum eingöngu, þar sem önnur trúarbrögð gjcra ekki stramgari kröfur en svo, að maðurinn getur fullnægt þeim. I þessum tiúarbxögðuim reyina þá mennirnir að teygja sig í eigin mætti upp til, Guðs. En í krist- indóminum teygir Guð s:g niður til mannanna, Trúarbrögðin leitast við í manniegum mætti að teygja sig upp, en í kristindóminum kemur guð- legur kraftur niður til þess að lyfta manninum upp. Það er krafturinn, sem fremiir öllu cðru að- greinir kristindóminn írá öðrum trúarbrögoum. Þau komast þangað, sem mennirnir geta komist í eigin mætti — ekki lengra.. Þau eru mannleg og komast þessvegna ekki lengra en það' mannlega. En kristindómurinn gefur nýjan, kraft, svo að maðurinn kemst í raun cg veru út iyrir sjálfan sig. Hin kristna trú er hæíileikar, sem Guö gel'ur og ná út fyrir takmörk hugsunarinnar cg lyfta manninum upp til samfélags við Guð. Maðurinn getur ekki, aðeins í eigin krafti, konv ist út fyrir það jarðneska. Til þess verður hann að fá kraft utanað. Maðurinn getur ekki sjálfui’ Frh. á 11. síðu. 8

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.